Fasteignaleitin
Skráð 7. nóv. 2024
Deila eign
Deila

Einholt 8 E

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-603
131.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
71.900.000 kr.
Fermetraverð
547.184 kr./m2
Fasteignamat
60.500.000 kr.
Brunabótamat
62.050.000 kr.
Mynd af Helgi Steinar Halldórsson
Helgi Steinar Halldórsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 1970
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2145905
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki skoðað
Raflagnir
Gott
Frárennslislagnir
Ekki skoðað
Gluggar / Gler
Ágætt
Þak
Endurnýjað 2022
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Lóð
12,39
Upphitun
Hitaveita - Ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Smá lekaummerki við glugga í eldhúsi. Sprunga í gleri í opnanlegu fagi við svalahurð niðri.
Kasa fasteignir 461-2010.

Einholt 8E. Nokkuð endurnýjuð og falleg 4-5 herbergja 131,4 fm raðhúsaríbúð á tveimur hæðum.

Neðri hæð skiptist í : Forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, snyrtingu, þvottahús og geymsla ásamt suður verönd.
Efri hæð skiptis í : Þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. 


Forstofa: Flísar á gólfi og góður fataskápur með rennihurðum. 
Eldhús: Er með nýlegri innréttingu, hvít háglans með góðu skúffu og bekkjarplássi. Öll eldhústæki eru nýleg, bakaraofn, innbyggður örbylgjuofn og span helluborð. Tvöfaldur ísskápur fylgir með við sölu ásamt uppþvottavél. Góður borðkrókur er í eldhúsi og harðparket á gólfi. 
Stofa / borðstofa: Nokkuð rúmgóð, þar er búið að setja innfellda lýsingu. Úr stofu er útgengt á skjólgóða verönd er snýr til suðurs. Harðparket er á gólfi.
Svefnherbergi: Eru í dag þrjú talsins, tvö þeirra eru með góðum fataskápum og harðparket er á gólfi. Eignin er skráð með fimm svefnherbergjum og væri lítið mál að útfæra fleiri herbergi á efri hæð íbúðarinnar.
Baðherbergi: Hefur verið nýlega gert upp, ljós innrétting, baðkar með sturtutækjum og glervæng, upphengt salerni og handklæðaofn. Flísar eru á gólfi og hluta veggja. 
Snyrting: Er á neðri hæð, þar hvít innrétting fyrir vask, upphengt salerni og flísar á gólfi. 
Geymslur: Eru í dag tvær, geymsla á neðri hæð, þar eru flísar á gólfi og góðir skápar og hillur. Geymsla á efri hæð er með hillum og harðparketi á gólfi. 
Þvottahús: Er með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, flísar eru á gólfi og opnanlegur gluggi. 

- Hellulögð verönd með timbur skjólveggjum til suðurs.
- Nýtt þak árið 2022.
- Ofnalagnir hafa verið endurnýjaðar. 
- Bæði baðherbergi hafa verið uppgerð. 
- Nýlegt harðparket er á gólfi. 
- Húsið er í góðu ástandi. 

Nánari upplýsingar veita:
Sigurpáll á sigurpall@kasafasteignir.is eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á helgi@kasafasteignir.is eða í síma 666-0999.
Sibba á sibba@kasafasteignir.is eða í síma 864-0054.

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/04/202352.050.000 kr.64.800.000 kr.131.4 m2493.150 kr.
23/02/202137.700.000 kr.36.100.000 kr.131.4 m2274.733 kr.
31/07/200717.290.000 kr.22.200.000 kr.131.4 m2168.949 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Munkaþverárstræti 28
Munkaþverárstræti 28
600 Akureyri
141 m2
Einbýlishús
413
507 þ.kr./m2
71.500.000 kr.
Skoða eignina Vallartún 6 íbúð 202
Vallartún 6 íbúð 202
600 Akureyri
116.4 m2
Fjölbýlishús
413
618 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Lækjarvellir 14
Bílskúr
Skoða eignina Lækjarvellir 14
Lækjarvellir 14
610 Grenivík
165.4 m2
Einbýlishús
514
452 þ.kr./m2
74.800.000 kr.
Skoða eignina Kjarnagata 57 - 107
Bílastæði
Kjarnagata 57 - 107
600 Akureyri
98.3 m2
Fjölbýlishús
312
711 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin