BÓKIÐ EINKASKOÐUN
NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 (milli kl. 9 og 18 alla virka daga) EÐA GUDNYTH@ALDIRFASTEIGNIR.IS
ALDIR og GUÐNÝ ÞORSTEINS löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Drekavelli 60, vel skipulagt 231,1 fm endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum 36,9 fm bílskúr ásamt stórum sólpalli með heitum potti, á Völlunum í Hafnarfirði. Húsið er byggt árið 2008.
Eignin samanstendur af: Forstofu, eldhúsi, gestasalerni, stofu, borðstofu, sólpalli, heitum potti, geymsluskúr, bílskúr, 4 svefnherbergjum, fataherbergi, sjónvarpsherbergi, þvottahúsi ásamt baðherbergi.
Helstu kostir- 231,1 fm endaraðhús á tveimur hæðum
- Innbyggður 36,9 fm bílskúr
- 4 svefnherbergi með möguleika á 5
- 175,4 fm sólpallur með heitum potti
- Rúmgóð og björt stofa og borðstofa með útgangi út á pall
- Sjónvarpshol með útgangi á suðursvalir
- Sérþvottahús á efri hæð
- Gólfhiti á báðum hæðum
Nánari lýsing
Aðalhæð
Forstofa: Rúmgóð forstofa með fataskápum og flísum á gólfi. Innangengt er úr forstofu í bílskúr.
Gestasnyrting: Flísalögð í hólf og gólf, með vegghengdu salerni og innréttingu með handlaug.
Eldhús: Rúmgott eldhús með HTH-innréttingu í eikarspón, góðu skápa- og skúffuplássi og svörtum granít steinborðplötum, innbyggðum örbylgjuofni auk bakarofns í vinnuhæð, spanhelluborð, háfur og rúmgóður borðkrókur.
Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott alrými með gólfsíðum gluggum ásamt hornglugga. Útgangur er úr stofu á sólpall með heitum potti.
Stigi: Steyptur, teppalagður stigi með handriði úr gleri og stáli tengir hæðirnar saman.
Efri hæð(Uppgefnar stærðir í þessu söluyfirlit er samkvæmt þinglýstum teikningum)
Herbergi 1: Er 14,9 fm að stærð, með tveimur gluggum, afstúkuðu 2,9fm fataherbergi, parketi á gólfi.
Herbergi 2: Er 12,6fm að stærð með fataskáp, parket á gólfi.
Herbergi 3: Er 11,5fm að stærð, parket á gólfi.
Herbergi 4: Er 10,3fm að stærð með fataskáp, parketi á gólfi.
Sjónvarpshol: Er 15,1fm að stærð með gólfsíðum gluggum og útgangi út á suðursvalir. Parket á gólfi.
Svalir: Eru 6,5fm að stærð með fallegu útsýni til fjalla. Flota þarf gólfið á svölunum.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf með glugga, rúmgóðri sturtu með glervegg, handklæðaofni, vegghengdu salerni ásamt góðri innréttingu með skolvask.
Þvottahús: Er með innréttingu yfir heilan vegg, glugga með opnanlegu fagi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vinnuborð með stálvaski.
Bílskúr og geymsla: Innbyggður 36,9 fm bílskúr með rafstýrðir bílskúrshurð, epoxy-húðuðu gólfi og innréttingu með stálvaski.
Inn af bílskúr er
6fm geymsla með útgangi út á pall. Fyrir framan hús og bílskúr eru góð bílastæði með snjóbræðslu.
Sólpallur, garður og útisvæði: Sunnan megin við húsið er 175,4fm sólpallur að hluta til á steyptri plötu með heitum potti ásamt geymsluskúr, en timburpalli hefur verið bætt við ásamt skjólveggjum og grill skýli yfir grill. Sunnan megin við skjólveggina er grasflötur ásamt runnum sem tilheyra eigninni.
Viðhald og endurbætur:2022 - Sólpallur stækkaður og skjólveggjum bætt við ásamt geymsluskúr við heita pottinn.
2024 - Jarðvegsskipti meðfram grasi og ný tré gróðursett.
2024 - Vegna leka á þaki var skipt um dúk ásamt einangrun og bætt við yfir dúk. Niðurföll yfirfarin og löguð eftir þörfum. Skipt um flasningar.
2024 - Plötur steyptar undir ruslaskýli og bætt við timburskýli fyrir tunnu.
2025 - Baðherbergi á efri hæð endurnýjað að hluta, skipt um flísar (dökkgráu), niðurfall í sturtu ásamt innréttingu.
2026 - Lágreist 11-12m grindverk smíðað við vesturhlið og runnar gróðursettir við göngustíg.
Staðsetning: Húsið er staðsett innst í botnlanga við Drekavelli í Hafnarfirði. Hraunvallaskóli er í um þriggja mínútna göngufjarlægð. Stutt er í matvöruverslanir og helstu þjónustu.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Villja ALDIR því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila (0,4% við fyrstu kaup einstaklinga).
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. – samkvæmt gildandi gjaldskrá sýslumanns.
Lántökugjald lánastofnunar – samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
Umsýsluþóknun til fasteignasölu – 79.900 kr. m.vsk.
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.