Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Fjöruklöpp 12, 250 Garður.
Um er að ræða fallegt fimm herbergja 133 fm. parhús á góðum stað í Garðinum, nálægt grunnskóla, sundlaug líkamsrækt ofl.
Eignin skiptist í anddyri, hol, fjögur svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, þvottahús, bílskúr og viðarpall með heitum potti.
Nánari lýsing:Komið er inn um
anddyri með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Hol er parketlagt
Eldhús hefur parket á gólfi, hvíta innréttingu, ofn, helluborð, viftu, innbyggðan ískáp og þvottavél.
Stofa/borðstofa er í opnu rými með parket á gólfi. Úr stofunni er útgengi út á stóran afgirtan
viðar pall með heitum potti.Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum að hluta, góð innrétting, upphengt salerni og sturta.
Svefnherbergin eru fjögur talsins, öll parketlögð. Útgengi er í einu herberginu út á pall.
Þvottahús hefur flísar á gólfi, góða innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskúrinn er 35,1 fm. flotað gólf, þar er
geymsluloft.Bílaplan er steypt.
Flaggstöng er á lóð að framan.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangið: es@es.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4%
ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr.
3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar
á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, skv. gjaldskrá.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.