Fasteignaleitin
Skráð 27. júní 2026

Arnarklettur 28

FjölbýlishúsVesturland/Borgarnes-310
82.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
53.900.000 kr.
Fermetraverð
655.718 kr./m2
Fasteignamat
46.150.000 kr.
Brunabótamat
48.100.000 kr.
Mynd af Gunnlaugur Hrannar Jónsson
Gunnlaugur Hrannar Jónsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
8990720Eignalisti
Byggt 2016
3. hæð af 4
Garður
Svalir
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2359661
Landnúmer
186935
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
6,89
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:

Íbúð 301, Arnarkletti 28, 310 Borgarnes. Björt og falleg 3ja herb. endaíbúð á 3. hæð í lyftuhúsi með sérinngangi og stórkostlegu útsýni. 

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is


Arnaklettur 28 er fjögurra hæða steinhús, byggt árið 2016 með alls sextán íbúðum, fjórar íbúðir á hverri hæð. Húsið er klætt með marmarasteining og er því viðhaldslítið. Tvær bílahleðslustöðvar við húsið. Sorpaðstaða er við enda bílaplans. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er í séreiningu við hlið hússins, alls 34,5 fm.
Íbúð 301 er 82,2 fm., sem telur forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og alrými þar sem er eldhús, borðstofa og stofa þaðan sem útgengt er á svalir með fallegu útsýni. 

Nánari lýsing:
Inngangur: Sérinngangur frá opnum stigagangi. Lyftuhús.
Forstofa:  Fataskápur og opið fatahengi. Millihurð. Flísar á gólfi. 
Gangur: Parket á gólfi.
Eldhús/stofa: Eldhús, stofa og borðstofa mynda rúmgott og bjart alrými. L-laga eldhúsinnrétting úr eik með efri og neðri skápum og dökkri borðplötu, tengi fyrir uppþvottavél. Útgengt út á svalir með fallegu útsýni. Parket á gólfi.
Herbergi: Tvö svefnherbergi með fataskápum. Parket á gólfi 
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með eikar innréttingu og dökkri borðplötu. Vegghengt salerni. Walk-in sturta. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Veggflísar að hluta. Dökkar flísar á gólfi. 
Geymsla: Innan íbúðar er 4,2 fm. geymsla. Rafmagnstengill. Parket á gólfi.

Virkilega falleg eign með fallegu útsýni í fjölskylduvænu hverfi. Frábær fyrstu kaup.

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is


-----------------------------------------------------

Annað:
- Einn gluggi í eldhúsi er laus frá á einni löm, það verður komið í lag fyrir afhendingu eignar. Rennilamir í gluggum eru ryðgaðar og mun seljandi sjá um að skipta þeim út fyrir afhendingu.

Húsfélag - A.t.h. beðið er eftir uppfærði yfirlýsingu
Húsfélagsgjöld eru kr. 24.724.- á mánuði og inn í því er húseigendatrygging, almennur rekstur og rafmagn í sameign. 
Húsfélagið ber enga skuld.
- Heildarstaða framkvæmdarsjóðs, dags. 21.1.2026 er kr. 242.117.- - --- Heildarstaða hússjóðs, dags. 21.1.2026 er kr. 1.007.918.-
Engar yfirstandandi eða væntanlegar framkvæmdir samþykktar, umræða hefur verið um að fjölga bílastæðum en engin ákvörðun tekin og það enn á umræðustigi skv. yfirlýsingu húsfélags. Húsið er viðhaldslítið og ekkert sem bendir til þess að koma skuli til nokkurra framkvæmda á ytra byrgði hússins á næstunni. Húsfélagið hefur ekki staðið í neinum framkvæmdum að ráði en hefur kostað eftirfarandi:
- Fyrir um tveimur árum setti húsfélagið upp tvær hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla
- Garðsláttuvél keypt.

Álagning fasteignagjalda 2026: Beðið er eftir gögnum

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/03/202541.650.000 kr.48.500.000 kr.82.2 m2590.024 kr.
09/06/202227.950.000 kr.34.400.000 kr.82.2 m2418.491 kr.
30/08/20166.800.000 kr.325.000.000 kr.1172.8 m2277.114 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kringlan 61
Opið hús:21. júlí kl 18:30-19:00
Skoða eignina Kringlan 61
Kringlan 61
103 Reykjavík
88.6 m2
Fjölbýlishús
312
902 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Flyðrugrandi 10
Opið hús:19. júlí kl 13:00-13:30
img_2338_copy_2.jpg
Skoða eignina Flyðrugrandi 10
Flyðrugrandi 10
107 Reykjavík
70.1 m2
Fjölbýlishús
312
997 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Dalsmúli 3
Skoða eignina Dalsmúli 3
Dalsmúli 3
108 Reykjavík
69.3 m2
Fjölbýlishús
312
1081 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Fossvegur 6
Skoða eignina Fossvegur 6
Fossvegur 6
800 Selfoss
73.3 m2
Fjölbýlishús
312
681 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin