Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega og vel skipulagða 79,7 fermetra 3ja herbergja íbúð á annari hæð í mjög mikið endurnýjuðu og eftirsóttu fjölbýlishúsi við Tjarnarból á Seltjarnarnesi. Geymsla í kjallara fylgir eigninni ásamt sameiginlegu þvottahúsi með vélum ásamt sameiginlegri hjóla- vagnageymslu. Góð aðkoma er að húsinu og næg bílastæði. Búið er að tengja sameiginlega rafhleðslu á bílastæði.
Húsið hefur verið mikið endurnýjað á undanförnum árum samkvæmt seljanda.
- Rafhleðsla við stæði 2024
- Múrgert og málað 2020-2022
- Loftúður endurnýjaðar 2020-2022
- Gluggar endurnýjaðir 2010
- Dren 2014-2015
- Þak var yfirfarið 2014
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun í síma 570-4500 eða á netfanginu sigridur@fastmark.is
Lýsing eignar:
Inngangur, sameiginlegur, teppalagt andyri og stigahús.
Forstofa /Hol, parketlagt og með fataskáp.
Hjónaherbergi, mjög rúmgott, dúklagt með fataskáp á heilum vegg.
Barnaherbergi, dúklagt með skáp.
Eldhús, opið við hol og borðstofu, korkflísar á gólfi og upprunaleg hvít innrétting með viðarköntum, flísum á milli skápa og viftu.
Borðstofa, parketlögð, opin við eldhús og stofu. Útgengið er á skjólgóðar svalir til suðvesturs.
Stofa, parketlögð og björt með fallegu útsýni.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, innrétting og baðkar með sturtu.
Í kjallara hússins er sameiginleg þvottahús með vélum til afnota ásamt hjóla og vagnageymsla með útgengi á lóð.
Sér geymsla, 7,0 fermetrar að stærð, málað gólf með hillum og glugga.
Húsið að utan lítur vel út og sameign er öll snyrtileg. Húsið er nýlega múrgert og málað og einnig var skipt um glugga 2010. Nýlega er búið að setja tengi fyrir rafbíla.
Lóðin er fullfrágengin og falleg með góðri aðkomu, afgirt með tyrfðum flötum, leiktækju og fjölda bílastæða.
Staðsetning eignarinnar er mjög góð á Seltjarnarnesi og stutt er í alla þjónustu og aðrar verslanir ásamt leikskóla, skóla sundlaug seltjarnarnes og golfvöll.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu sigridur@fastmark.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignamarkaðurinn ehf. fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.