Fasteignaleitin
Skráð 5. júní 2026

Lundur 26

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
184.2 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
198.000.000 kr.
Fermetraverð
1.074.919 kr./m2
Brunabótamat
120.150.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
23503526
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Fjárfesting fasteignasala Borgartúni 31, kynnir glæsilegt parhús á þessum einstaka stað í Lundi í Fossvogsdal Kópavogsmegin.  Eignin er staðsett innst í botnlanga og mjög umferðalétt.
Vandað hús bygg af Byggingafélagi Gunnars og Gylfa (Bygg).


Húsið skiptist í fallegt eldhús, tvær stofur, borðstofu með útgengi á ca 100fm sólpall, sjónvarpsstofu, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, rúmgóðan bílskúr (27,79fm) með innréttingu, þrjú bílastæði og rafmagnshleðslustöð.

Fasteignamat er kr. 146.050.000.

BÓKIÐ SKOÐUN:
Eignin verður sýnd skv. bókaðri skoðun hjá fasteignasala.
Guðmundur H Valtýsson viðskiptafr. og löggiltur fasteignasali s. 865 3022 eða gudmundur@fjarfesting.is

****** Seljendur eru opnir fyrir skipti á minni eign. ******

NÁNARI LÝSING:
Komið er inn í forstofu með góðum skáp.
Gesta/barnaherbergi með skápum, flísalagt gestabaðherbergi með upphengdu salerni, sturtu, handklæðaofni og innréttingu, sjónvarpsstofu auk þvottahúss og geymslu með innréttingum.

Gengið er upp í stofu og borðstofu með útgang út á ca 100 fm sólpall.  Fallegt eldhús með innréttingu frá Eirvík með tvöföldum LG ísskáp með vatni og klakavél, AEG bakarofni, AEG uppþvottavél, 90cm spanhelluborði og uppdragaleg 90cm vifta.  Borðplata er Quartzsteinn frá Granítsmiðjunni. Lofthæð í stofum og eldhúsi er 4,3m.

Frá stofu er gengið upp í setustofu, hjónaherbergi með skápum og útgengi út á svalir auk barnaherbergis með skápum.  Baðherbergi er flísalagt með upphengdu salerni, sturtu, handklæðaof og innréttingu.

Allar hurðir eru svartbæsaðar viðarhurðir frá AXIS, allar hurðir eru 2,35 m hæð, rúllugardínur eru í öllum herbergjum og rafknúnar í eldhúsi, borðstofu og stofu.  Eikarparket en flísar á eldhúsi, baðherbergjum, þvottahús og geymslu.
Gólfhiti í húsi og upphituð bílastæði og gangstétt.  Tenging fyrir heitan pott á sólpalli.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.

Fjárfesting fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.


 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fjárfesting fasteignasala ehf
http://www.fjarfesting.is/

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skógarlundur 6
Bílskúr
Skoða eignina Skógarlundur 6
Skógarlundur 6
210 Garðabær
215.7 m2
Einbýlishús
614
857 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 120
Bílastæði
Skoða eignina Hringbraut 120
Hringbraut 120
101 Reykjavík
154.7 m2
Fjölbýlishús
423
1324 þ.kr./m2
204.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 12G
Bílastæði
Skoða eignina Hafnarbraut 12G
Hafnarbraut 12G
200 Kópavogur
100.6 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Barðastaðir 41
Bílskúr
Skoða eignina Barðastaðir 41
Barðastaðir 41
112 Reykjavík
225.6 m2
Raðhús
614
664 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin