Fasteignaleitin
Skráð 26. nóv. 2026

Óðinsgata 26

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
62.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
1.045.089 kr./m2
Brunabótamat
36.710.000 kr.
Byggt 1919
Svalir
Pallur
Sturtuklefi
Sérinng.
Fasteignanúmer
20071076
Húsgerð
Hæð
Inngangur
Sérinngangur

Pálsson Fasteignasala kynnir:

-Frábær staðsetning í miðbænum
-Sér inngangur
-Eignarlóð
-Verönd í sól- og skjólríkum garði


Hæðin er þriggja herbergja og 62,1 fm samkvæmt HMS, þar af er geymsla á lóð sem býður upp á möguleika.
Hluti af íbúðinni er undir súð en með góða lofthæð.
Parket er á gólfum í alrými og svefnherbergjum, flísalagt á baðherbergi og teppalagt upp stiga.

Eignin hefur fengið gott viðhald bæði að innan og utan í gegnum árin:
-Eldhús tekið í gegn 2023
-Skipt um sturtubotn á baðherbergi 2025

-Viðbygging klædd 2020 og settur timburpallur
-Skólp endurnýjað 2021
-Gluggar endurnýjaðir að hluta
-Vatnslagnir einnig
-Skipt um þakjárn og timbur að hluta og nýjar þakrennur 2019
-Steinn múrviðgerður

Falleg risíbúð í tvíbýli í miðbænum sem vert er að gefa góðan gaum.

Nánari upplýsingar veitir:
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða aj@palssonfasteignasala.is


Nánari lýsing:
Gengið er inn í forstofu inn um snotra viðbyggingu með timburverönd.
Á vinstri hönd er búið að koma fyrir tengi fyrir þvottavél og á hægri hönd er gengið upp teppalagðan stiga sem liggja að alrými.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi. Útbúið vaskinnréttingu, handklæðaofni, sturtu með nýlegum sturtubotni og upphengdu salerni. Lýsing er fyrir spegil fyrir ofan vaskinnréttingu.
Eldhúsið er með fallegri viðarinnréttingu og panel á veggjum milli efri og neðri skápa. Bakaraofn, helluborð, háfur og gott skápapláss. Tekið í gegn 2023.
Stofa og eldhús flæða saman og er rýmið mjög bjart og opið með gluggum á þremur hliðum.
Tvö svefnherbergi, annað er á vinstri hönd þegar gengið er upp stigann og hitt inn af alrými.

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Pálsson fasteignasala
https://www.palssonfasteignasala.is

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Flókagata 3
Skoða eignina Flókagata 3
Flókagata 3
105 Reykjavík
51,7 m2
Fjölbýlishús
211
965 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 (213)
Bílastæði
Laugavegur 168 (213)
105 Reykjavík
113,9 m2
Fjölbýlishús
312
1009 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Mánatún 7
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Mánatún 7
Mánatún 7
105 Reykjavík
141,1 m2
Fjölbýlishús
312
850 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin 1 - Þaksvalir 505
Opið hús:29. nóv. kl 13:00-13:30
11.png
Vesturvin 1 - Þaksvalir 505
101 Reykjavík
104,3 m2
Fjölbýlishús
321
1198 þ.kr./m2
125.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin