Fallegt raðhús á tveimur hæðum við Engjasel 66, vinsæl staðsenting miðsvæðis í Reykjavík
* Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu
* 3-4 svefnherbergi
* 2 endurnýjuð baðherbergi
* Sólpallur til suðurs með skjólveggjum Viðhald eignar sl. ár tiltelur ma.:2000 var rafmagnstafla endurnýjuð
2016 voru endurnýjaðar vatnslagnir að hluta
2023 var endurnýjað þakjárn
2025-2026 voru endurnýjaðir gluggar og svalarhurðir á suðurhlið
Endurnýjaðir ofnar, tenglar ofl.
Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.iswww.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur Birt stærð eignar samkv. HMS er 159,5 m2
1. hæð skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, sólskála, baðherbergiForstofa er flísalögð með fataskápum.
Eldhús er með parket á gólfi og eldhús innréttingu með eldavél, viftu og tengi fyrir uppþvottavél.
Borðstofa,
stofa og
sólskáli er í rúmgóðu björtu rými. Í stofum eru parket á gólfi.
Sólstofa er flísalögð og þaðan er útgengt út í
garð til suðurs. Þar er
sólpallur með skjólveggjum.
Baðherbergi er flísalagt, þar er upphengt salerni, "walk-in" sturta og handlaug úr Akrýl-steini.
2. hæð skiptist í 3 svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi, þvottahús, geymsluloftSvefnherbergi 1 er með parket á gólfi og fataskápum, útgengt út á svalir til suðurs með svalarlokun.
Svefnherbergi 2 og
3 er með parket á gólfi og fataskápum.
Sjónvarpshol er rúmgott með flísum á gólfi, var áður
svefnherbergi 4 og væri einfalt mál að útbúa það aftur.
Baðherbergi er flísalagt, þar er upphengt salerni, baðkar með sturtuaðstöðu, granít borðplata og handlaug
Þvottahús er með tengjum fyrir vélar og með skolvaski.
Geymsluloft er yfir hæðinni.
Sérmerkt
bílastæði er í lokaðri
bílageymslu, það er búið að leggja fyrir rafmagni fyrir hleðslustöð.
Einstaklega fjölskylduvænt hús á góðum stað í Breiðholtinu þaðan sem er stutt í skóla, leikskóla og alla aðra þjónustu.
Stór leikvöllur og fótboltavöllur eru á lóðinni.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.