Hamraborg 28, íbúð 103, 200 Kópavogi er góð
40,2fm 2ja herbergja íbúð á
fyrstu hæð með
aðgengi að stæði í bílageymslu. Íbúðin skiptist í anddyri, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu.
Sér geymsla,
sameiginlegt þvottaherbergi, þurkherbergi og hjólageymsla eru í sameign hússins.
Aðgengi í bílageymslu undir húsinu fylgir með.
Bókið skoðun hjá fasteignir@procura.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í góða forstofu. Flísar á gólfi.
Eldhús: Opið inn í stofu, mikið skápapláss, hólf fyrir ísskáp. Parket á gólfi.
Stofa: Góð stofa, útgengt á góðar svalir sem snúa inn í fallegan lokaðan garð með trjágróðri. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Gott herbergi. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Sturtuklefi, speglaskápur. Flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottaherbergi og þurkherbergi í sameign.
Geymsla: Í kjallara er geymsla og sameiginleg hjólageymsla.
Bílastæði: Lokaður sameiginlegur bílakjallari undir húsinu og er innangengt í það úr stigahúsi.
Frábær staðsettning, skjólgóður garður með leiktækjum, stutt til allra átta og í alla þjónustu.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Procura fasteignasölu á netfang fasteignir@procura.is eða í síma 497 7700
- - -
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Kostnaður kaupanda: Opinber gjöld vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak