Goðasalir 1, 201 Kópavogi. Endaraðhús á tveimur hæðum ásamt innbyggðum bílskúr, samtals 225 FM. Glæsilegur garður í góðri rækt með heitum potti ásamt gufuklefa sem á eftir að tengja. Fallegt og gott fjölskylduhús á frábærum stað í Kópavogi með glæsilegu útsýni yfir á Reykjanesið, Kópavoginn og Snæfellsjökul. Húsið stendur ofan við götu og ekki eru hús á móti og því næg bílastæði. Neðri hæðin skiptist í forstofu, gestasalerni með sturtu, stóra stofu með arni og borðstofu, eldhús, þvottaherbergi, geymslu og bílskúr. Á efri hæð eru 5 svefnherbergi: hjónaherbergi með fataherbergi innaf og fjögur rúmgóð barnaherbergi, sjónvarpshol og baðherbergi ásamt svölum með góðu útsýni.
Forstofa: er með gólfhita og flísum ásamt góðum fataskáp með speglum.
Gestasalerni: er flísalagt og með gólfhita. Sturtuklefi í enda rýmisins.
Stofa: er rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengi er frá stofunni út á pallinn í garðinum. Í stofunni er innbyggður arinn frá Funa.
Borðstofa: samtengd stofunni er rúmgóð. Ljóst parket á gólfi. Opið er bæði yfir í stofuna og í eldhúsið.
Eldhús: flísalagt og með gólfhita. Það er rúmgott með góðri innréttingu og eyju. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingunni. Góðir gluggar.
Þvottaherbergi: rúmgott með flísum á gólfi. Vaskur og vinnuborð. Útgengi út á veröndina á bak við húsið frá þvottaherberginu. Þar er gert ráð fyrir þvottasnúrustaur.
Geymsla: Góð geymsla innaf þvottaherberginu á milli bílskúrs og þvottaherbergis.
Bílskúr: Innbyggður 27,2 FM. 3ja fasa rafmagn ásamt innréttingu með vaski og heitu og köldu vatni. Innangengt er frá honum í húsið. Rafmagnsopnun m/fjarstýringu.
Gengið er upp á efri hæðina um steyptan stiga með parketi á gólfi. Handrið er frá Járnsmiðju Óðins. Aukin lofthæð er á efri hæð, ljós eru innfelld.
Hjónaherbergi + fataherbergi og fjögur barnaherbergi: Öll herbergin eru með parketi á gólfi.
Baðherbergi: flísalagt og með gólfhita. Baðkar, innrétting ásamt handklæðaofni. Fjórir litlir gluggar setja skemmtilegan svip á rýmið.
Alrými: Setustofa/sjónvarpshol er fyrir miðju hæðarinnar fyrir framan svefnherbergin og er útgengt á vestursvalir með fallegu útsýni.
Nánari upplýsingar gefur Gústaf Adolf lgf., gustaf@miklaborg.is / 895-7205.
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
210 | 235,4 | 294,9 | ||
210 | 135,8 | 93,9 | ||
210 | 387,4 | 239,9 | ||
210 | 128,6 | 164,9 | ||
210 | 98,1 | 128,5 | ||
200 | 139,6 | 172 |