Domus Fasteignasala á Norðurlandi vestra kynnir til sölu Hlíðarbraut 11 á Blönduósi.
Smelltu hér til að skoða kynningarmyndband um eignina.Glæsilegt og vel viðhaldið 5 herbergja einbýlishús á einni hæð, að hluta endurnýjað, ásamt rúmgóðum tvöföldum bílskúr.
Heildarstærð eignarinnar er 203,9 fm, þar af er bílskúr 70,1 fm. Við húsið er stórt og rúmgott bílaplan, að hluta steypt, auk fallegar timburverandar sem liggur í kringum húsið. Á veröndinni er heitur pottur sem snýr í vestur og býður upp á notalega kvöldsól.
Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, fjögur svefnherbergi, bjarta og rúmgóða stofu og borðstofu, eldhús, gang, baðherbergi, þvottahús/geymslu, bakinngang og bílskúr.
Nánari lýsing:Forstofa er með dökkum flísum á gólfi og opnu fatahengi.
Gestasnyrting er staðsett við forstofu og er útbúin með vaski og salerni.
Einnig er
herbergi við forstofu með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru einstaklega rúmgóðar og bjartar, með parketi á gólfi og útgengi á sólríka timburverönd til suðurs.
Eldhús er í opnu rými við stofu og er með fallegri hvítri innréttingu, stæði fyrir tvöfaldan ísskáp og dökkri granít borðplötu. Þar er bakaraofn í vinnuhæð, uppþvottavél og aðliggjandi opið búr/tækjarými með sams konar innréttingu. Úr eldhúsi er einnig innangengt í forstofu bakinngangs.
Þvottahús og geymsla eru með dökkum flísum á gólfi og góðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, auk handklæðaofns. Þaðan er einnig bakinngangur inn í húsið.
Gangur er með parketi á gólfi, og þar er aðgengi að lofti um lúgu. Innst á ganginum hefur verið útbúið hentugt skrifstofuhorn.
Af gangi eru
þrjú svefnherbergi; tvö barnaherbergi og rúmgott hjónaherbergi með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og er með góðri innréttingu, baðkari og salerni. Þar er gluggi sem gefur náttúrulega birtu og möguleika á loftræstingu.
Tvöfaldur bílskúr stendur austan við húsið, með tveimur innkeyrsluhurðum og sérinngangi. Ljósar flísar eru á gólfi og innst er köld geymsla. Einnig hefur verið útbúin sturtuaðstaða með léttum milliveggjum.
Annað:-Frárennsli og brunnur í plani hafa verið endurnýjuð
-Þak á bílskúr er farið að láta á sjá og þarfnast viðhalds
Um er að ræða gott einbýlishús á vinsælum stað á Blönduósi þar sem stutt er í alla þjónustu.
Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 domus@domus.is
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 stefano@pacta.isForsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.