Fasteignaleitin
Skráð 28. nóv. 2025

Strandvegur 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
119.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
795.474 kr./m2
Fasteignamat
86.750.000 kr.
Brunabótamat
68.780.000 kr.
Mynd af Heiðar Friðjónsson
Heiðar Friðjónsson
Löggildur Fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2267901
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
09
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
austur-svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
 NÝTT Í SÖLU, NÝTT Í SÖLU, Strandvegur 6, Glæsileg 119,3 fm, stór 3ja herb. íbúð á miðhæð í góðu húsi á frábærum stað í sjálandshverfi Garðabæjar, með sér stæði í býlageymslu og geymslu fyrir aftan stæði.    

Heiðar sýnir samdægurs, pantið skoðun  s.693-3356 / heidar@valholl.is


Um er að ræða fallega og mjög rúmgóða íbúð ásamt stæði í bílageymslu í þriggja hæða fjölbýli í Sjálandshverfinu við Strandveg í Garðabæ. Eignin er skráð samkvæmt fasteignaskrá 119,3 fermetrar og þar af er geymsla 7,5 fermetrar.  Íbúðin er á annarri hæð og skiptist í forstofugang, tvö rúmgóð svefnherbergi, samliggjandi stofu og borðstofu, opið nýtt eldhús, þvottaherbergi með geymslu inn af og baðherbergi. Sérgeymsla er inn af stæði í bílageymslu og þar er einnig dekkja- og hjólageymsla. Sex íbúðir í stigagangi. Góður sameiginlegur gróinn garður með leiktækjum við húsið.

Nánari lýsing: 
Forstofa: komið er inn í forstofu með eikarparketi á gólfi og fataskáp. Mynddyrasími.
Eldhús: Eldhús með nýrri innréttingu, steinn á borðum, tveimur ofnum og stórri eyju, flísar á gólfi.
Borðstofa: Borðstofan er rúmgóð með flísum á gólfi.
Stofa: Stofan er björt og skemmtileg með eikarparketi á gólfi, útgengt er út á flísalagðar 7 fm svalir. Nýlegar rúllugardínur eru fyrir öllum gluggum.
Svefnherbergi:  Svefnherbergin eru tvö og bæði rúmgóð með eikarparketi og fataskápum. Annað herbergið er um 17 fm  inn af alrými og hitt um 12 fm inn af forstofugangi gegnt baðherbergi.
Baðherbergi: Baðherbergi er flísalagt með eikarinnréttingu, upphengt salerni og baðkar með sturtu.
Þvottaherbergi/geymsla: Inn af eldhúsi er flísalagt þvottaherbergi með góðu vinnuborði og geymsla með hillum þar inn af.
Geymsla: Góð sérgeymsla er í sameign inn af bílastæði í bílageymslu. Auk þess er hjóla- og vagnageymsla og geymsla fyrir dekk. Bílastæðið er með hleðslustöð.

Þetta er virkilega rúmgóð 3ja herb. íbúð með stæði í bílageymslu á eftirsóttum stað í Sjálandshverfi Garðabæjar þar sem örstutt, er út í fallegar gönguleiðir, ylströnd, skóla, leikskóla og ýmsa þjónustu.
Allar frekari uppl. um eignina veitir Heiðar Friðjónsson lögg. fasteignasali í s. 693-3356 að á heidar@valholl.is  


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/03/202586.750.000 kr.94.500.000 kr.119.3 m2792.120 kr.
26/10/202263.200.000 kr.76.000.000 kr.119.3 m2637.049 kr.
19/01/202263.200.000 kr.74.000.000 kr.119.3 m2620.284 kr.
25/04/201431.350.000 kr.35.000.000 kr.119.3 m2293.378 kr.
16/06/201029.450.000 kr.22.000.000 kr.119.3 m2184.409 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2004
Fasteignanúmer
2267901
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
16
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.930.000 kr.

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Geislaskarð 2
3D Sýn
Skoða eignina Geislaskarð 2
Geislaskarð 2
221 Hafnarfjörður
108 m2
Fjölbýlishús
413
727 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin