Fasteignaleitin
Skráð 16. okt. 2026

Furugrund 62

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
130.6 m2
5 Herb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
764.931 kr./m2
Fasteignamat
85.100.000 kr.
Brunabótamat
72.900.000 kr.
AA
Agnar Agnarsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1975
2. hæð · efsta
Garður
Svalir
Pallur
Fasteignanúmer
2060814
Landnúmer
114429
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
ekki vitað
Þak
í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir
Upphitun
Danfoss sameiginlegur
130 fm, 4–5 herbergja íbúð á efstu hæð með þremur svefnherbergjum, suðursvölum og rúmlega 20 fm rými í kjallara með útleiguaðstöðu. Íbúðin er á annarri hæð til vinstri í húsi sem hannað er af Vífli Magnússyni. Fjórar íbúðir eru í stigahúsinu og liggja þær allar í gegnum húsið.
Íbúðin býður upp á björt og rúmgóð samliggjandi alrými, endurnýjað eldhús og svefnherbergi á sérgangi. Ofnar í íbúðinni hafa verið endurnýjaðir og svalagólf nýlega endurflotað. Geymsla í kjallara fylgir eigninni og gæludýr eru leyfð.
Helstu atriði
·         130 fm, 4–5 herbergja íbúð á efstu hæð.
·         Þrjú rúmgóð svefnherbergi með fataskápum.
·         Endurnýjað, opið eldhús með rúmgóðri borðaðstöðu.
·         Björt stofa og rúmgott sjónvarpshol.
·         Suðursvalir með aðgengi úr hjónaherbergi.
·         Baðherbergi með baðkari, sturtu og þvottaaðstöðu inn af.
·         Rúmlega 20 fm rými í kjallara með útleiguaðstöðu, nú í útleigu.
·         Skjólsæll sameiginlegur garður til suðurs.
·         Stutt í skóla, íþróttaaðstöðu og útivist í Fossvogsdal.
Nánari lýsing
Forstofa: Komið er inn í opna forstofu með fataskápum. Þaðan tekur við bjart og rúmgott alrými.
Eldhús og borðaðstaða: Eldhúsið er endurnýjað, rúmgott og opið að sjónvarpsholi og stofu. Þar er ljós, U-laga innrétting og góð borðaðstaða. Stór gluggi veitir mikla birtu og útsýni í átt að Fossvogsdal.
Sjónvarpshol og stofa: Rúmgott sjónvarpshol tengir saman eldhús og stofu. Nokkrar tröppur liggja upp í stofuna sem er björt og rúmgóð.
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru á sérgangi frá sjónvarpsholi. Í öllum herbergjum eru fataskápar. Úr hjónaherbergi er gengið út á suðursvalir, en gólf þeirra hefur nýlega verið endurflotað. Hin tvö herbergin eru með góðum gluggum.
Baðherbergi og þvottaaðstaða: Baðherbergið er flísalagt með ljósum flísum og búið bæði baðkari og sturtu. Þar er innrétting undir handlaug og spegill fyrir ofan. Inn af baðherberginu er þvottaaðstaða með plássi fyrir þvottavél og þurrkara, hillum og þvottasnúrum.
Kjallari og sameign
Eigninni fylgir rúmlega 20 fm rými í kjallara með útleiguaðstöðu, sem nýtt er sem einstaklingsíbúð og er nú í útleigu. Rýmið var að mestu endurnýjað árið 2021. Sérgeymsla í kjallara fylgir einnig eigninni.
Í sameign er auk þess rúmgott herbergi í eigu húsfélagsins, upphaflega hannað sem gufubað, sem nú er leigt út.
Sameiginlegur garður snýr til suðurs og er skjólsæll. Þar er pallur, lítill útieldhúskrókur og sameiginleg garðhúsgögn.
Staðsetning og nærumhverfi
Húsið stendur rétt við Fossvogsdal, þar sem fjölbreytt útivistar- og afþreyingaraðstaða er fyrir alla fjölskylduna. Í nágrenninu eru meðal annars frisbígolfvöllur, blakvellir, fótboltavellir, leiksvæði og íþróttahús.
Leikskólar, Snælandsskóli og íþróttamannvirki eru í göngufæri. Góðar göngu- og hjólaleiðir liggja um svæðið, meðal annars í átt að Nauthólsvík og Elliðaárdal.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/04/202577.000.000 kr.100.000.000 kr.130.6 m2765.696 kr.Já
29/06/202151.400.000 kr.73.000.000 kr.130.6 m2558.958 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ársalir 3
Opið hús:20. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Ársalir 3
Ársalir 3
201 Kópavogur
123,5 m2
Fjölbýlishús
312
687 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Silfursmári 2 (10-06)
3D Sýn
Bílastæði
Hleðslustöð
Silfursmári 2 (10-06)
201 Kópavogur
123,2 m2
Fjölbýlishús
312
1006 þ.kr./m2
123.900.000 kr.
Skoða eignina Ásgarður 20
3D Sýn
Efsta hæð
Opið hús:20. okt. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Ásgarður 20
Ásgarður 20
108 Reykjavík
51,7 m2
Fjölbýlishús
211
1043 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Strandvegur 9
Opið hús:17. okt. kl 12:30-13:00
Skoða eignina Strandvegur 9
Strandvegur 9
210 Garðabær
118 m2
Fjölbýlishús
412
931 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin