Um er að einstaklega fallega og nýlega uppgerða 4ra herbergja efri sérhæð og ris með bílskúr í Hafnarfirði. Sérinngangur er í íbúðina. Birt stærð eignar er 148,9 fm og þar af er íbúðarhluti 120,7 fm og bílskúr 28,2 fm. Mögulegt er á að útbúa íbúð í risi og bílskúr.
Eignin skiptist í anddyri, gang, í alrými er stofa, borðstofu og eldhús, baðherbergi með þvottaaðstöðu, salerni, 3 svefnherbergi, rishæð (tvö rými) og bílskúr.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXNánari lýsing:Anddyri: Komið er inn í anddyri með fatahengi og flísum á gólfi.
Gangur: Með hvítum skáp, parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Í alrými með eldhúsi, rúmgóð og björt stofa, útgengt út á vestur svalir með útsýni, parket á gólfi.
Eldhús: Endurnýjað. Í alrými með stofu / borðstofu, hvít innrétting,
bakarofn og spanhelluborði eru nýleg, vifta, innbyggð uppþvottavél, pláss fyrir tvöfaldan ísskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi / þvottaaðstaða: Endurnýjað. Hvít innréttingu með handlaug, skúffum, veggskápur og speglaskápur, innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara, "walk-in" sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn, flísar á gólfi, inn í sturtu og á salerniskassa.
Hjónaherbergi: Rúmgott svefnherbergi, viðar fataskápar, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3 / salerni: Rúmgott svefnherbergi, parket á gólfi. Inn af svefnherberginu er salerni með hvítri innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og flísum á gólfi.
Ris: Í risi er tvö rými sem verið er að endurnýja. Möguleiki er að útbúa þar hjónasvítu eða jafnvel aukaíbúð. Búið er m.a. að leggja upp í risið fyrir neysluvatnslögnum, ofnalögnum og skolplögnum, flota gólf, einangra og klæða loft að hluta.
Bílskúr: Birt stærð 28,20 fm. Gönguhurð og gluggar, heitt og kalt vatni, rafmagni og hiti. Sérafnotaflötur er fyrir framan bílskúr. Mögulegt er að gera íbúð í bílskúrnum.
Húsið og bílskúr: Er steinsteypt og byggt 1947. Í húsinu eru tvær íbúðir.
Lóð: Gróin og fallega 657,6 fm sameiginleg lóð. Sérafnotfletir eru framan við bílskúr og á milli hússins og bílskúrsins. Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu.
Staðsetning: Smellið hér. Eignin hefur verið talsvert endurnýjuð að innan sem utan undanfarin ár m.a.: * Íbúðin er mikið endurnýjuð m.a innréttingar, gólfefni, hurðar, ofnakerfi- og lagnir.
* Endurnýjað múrkerfi sett utan á húsið og málað.
* Endurnýjaðir gluggar að undanskildum þakgluggum.
* Endurnýjaðar skólplagnir, neysluvatnslagnir, rafmagnstafla og rafmagn endurnýjað að mestum hluta.
* Settur forhitari í íbúð, aðgengilegur í skáp á baðherbergi.
* Ris hefur verið endurnýjað nokkuð m.a. leggja þangað vatns-, hita-, frárennslislagnir og leggja fyrir rafmagni, flota gólf, setja upp veggi, einangra loft og setja loftaklæðningu.
Hér er um að ræða falleg og mikið endurnýjað eign með miklum möguleikum á góðum stað miðsvæðis í Hafnarfirði. Stutt er í verslanir og ýmsa þjónustu, Suðurbæjarlaug, leikskóla, skóla og framhaldsskóla svo fátt eitt sé nefnt. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.