Fasteignaleitin
Skráð 8. apríl 2026

Geirþrúðarhagi 6a

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
60.8 m2
3 Herb.
1 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
51.900.000 kr.
Fermetraverð
853.618 kr./m2
Fasteignamat
48.200.000 kr.
Brunabótamat
37.500.000 kr.
Mynd af Gabríela Jónsdóttir
Gabríela Jónsdóttir
Sérinng.
Fasteignanúmer
2506928
Landnúmer
225135
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
03
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sérinngangur
LIND fasteignasala kynnir bjarta og vel skipulagða 2-3ja herbergja, 60,8 fm. íbúð á jarðhæð í fallegu fjölbýlishúsi við Geirþrúðarhaga 6a, staðsett í vinsælu hverfi á Akureyri. Sérinngangur og frábært útisvæði með góðu útsýni í suðaustur átt. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Eignin er skráð 60,8 fm. og skiptist í forstofu, rúmgóða og bjarta stofu með opið eldhús í alrými, hjónaherbergi, svefnherbergi/geymsla og baðherbergi. Útgengt út á verönd úr stofu.

Alrýmið er rúmgott og bjart. Íbúðin er innréttuð með stílhreinum innréttingum, harðparket á gólfum, votrými og anddyri eru flísalögð. Gólfhiti í allri íbúðinni og vélrænt útsog á baðherbergi og í eldhúsi. Bílastæði fylgir með sér rafmagnstengli. 

Nánari lýsing:
Forstofa, björt með fatahengi og flísalögð gólf.
Eldhús/borðstofa opið inn í stofu. Svört efri og neðri innrétting og grá borðplata á borðum. Span helluborð, ofn og innbyggður ísskápur.
Stofa er einstaklega björt og opin, harðparket á gólfi. Útgengt út á sér verönd og sameginlegan garð.
Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með stórum fataskápum, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi/geymsla með einföldum fataskáp, harðparket á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Vegleg innrétting þar sem þvottavél og þurrkari eru í upp-hækkaðri stöðu. Speglaskápur með led lýsingu, sturta með gleri og upphengt salerni.
Stypt verönd er 8,9 fm. og gengið er út úr alrými  út á hana um gler rennihurð. 


Geirþrúðarhagi 6a er fallegt tveggja hæða fjölbýlishús, steinsteypt og einangrað að utan, klætt með báraðri járnklæðingu. Allir innveggir eru hlaðnir eða staðsteyptir. Alls eru sjö íbúðir í húsinu. 
 
Frábær staðsetning á vinsælum stað í Hagahverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Eignin getur verið laus til afhendingar á næsta leiti. 

Allar upplýsingar um eignina veita:
Gabríela Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1992 / gabriela@fastlind.is

​​​​​​
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
18/08/202229.450.000 kr.42.500.000 kr.60.8 m2699.013 kr.
11/01/202129.050.000 kr.28.800.000 kr.60.8 m2473.684 kr.
06/08/20202.370.000 kr.28.800.000 kr.60.8 m2473.684 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (14)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Pósthússtræti 9, 301
Pósthússtræti 9, 301
230 Reykjanesbær
118.8 m2
Fjölbýlishús
312
841 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Fjárhústunga 7
Skoða eignina Fjárhústunga 7
Fjárhústunga 7
320 Reykholt í Borgarfirði
76.8 m2
Sumarhús
313
650 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Eyrarvegur 20
Bílskúr
Skoða eignina Eyrarvegur 20
Eyrarvegur 20
350 Grundarfjörður
168.1 m2
Einbýlishús
413
273 þ.kr./m2
45.900.000 kr.
Skoða eignina Búðagerði 5
Bílskúr
Skoða eignina Búðagerði 5
Búðagerði 5
108 Reykjavík
163.9 m2
Fjölbýlishús
624
731 þ.kr./m2
119.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin