Fasteignaleitin
Skráð 16. sept. 2025

Urriðaholtsstræti 14

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
101.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.500.000 kr.
Fermetraverð
812.008 kr./m2
Fasteignamat
86.100.000 kr.
Brunabótamat
67.790.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2501419
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Nýlegar
Raflagnir
Nýlegar
Frárennslislagnir
Nýlegar
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Nýtt í sölu! Urriðaholtsstræti 14 Garðabæ - Bókið skoðun hjá heimir/fastlind.is eða í síma 849-0672.

Skipti á eign koma til greina.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilega og vel skipulagða 3ja herbergja 101,6 fermetra útsýnisíbúð á 3. hæð í nýlegu fjölbýli með lyftu við Urriðaholtsstræti 14 í Garðabæ. Íbúðin er með rúmgóðum svölum til suðurs og sérbílastæði í lokuðum og upphituðum bílakjallara. Sérgeymsla sem er 14,4 fermetrar að stærð með gluggum. Vandað hús og fallegt hús með innréttingum frá HTH.

Húsið er afar fallegt byggt árið 2020, álklætt og viðhaldslítið með fallega frágenginni lóð. Hellulagðar stéttar fyrir framan hús. Sameiginleg stæði fyrir framan hús. Myndavéladyrasími er í íbúð og er sameign snyrtileg og til fyrirmyndar.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í Urriðaholti Garðabæ. Leikskóli og grunnskóli í göngufjarlægð ásamt leiksvæðum. Afar fallegar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni um Heiðmörk, Urriðavatn og víðar. 


Lýsing eignar:
Forstofa: Með harðparketi á gólfi og góðum skápum.
Alrými samanstendur af stofu og eldhúsi.
Eldhús:
Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu frá HTH. AEG Stál bakaraofn, AEG spanhelluborð og falleg eyju vifta. Stæði fyrir kæliskáp og tengi fyrir uppþvottavél. Lýsing undir efri skápum.
Stofa: Með harðparketi á gólfi. Gluggar til suðurs og útgengi á svalir.
Svalir: Eru rúmgóðar, með glerhandriði og snúa til suðurs.
Borðstofa: Með harðparketi á gólfi og er staðsett við eldhús. Gluggar með fallegu útsýni til norðurs m.a. út á sundin, Esjunni og Snæfellsjökli.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, góðum skápum og gluggum til suðurs.
Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs með fallegu útsýni.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Falleg innrétting við vask. Upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun. Stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi.

Bílastæði: Er vel staðsett í lokuðum og upphituðum bílakjallara. Afar snyrtilegur bílakjallari þar sem búið er að leggja grunnkerfi fyrir bílhleðslustöðvar.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla: Er staðsett í sameign hússins. 
Sér geymsla: Er staðsett í sameign sem er 14,4 fermetrar að stærð með máluðu gólfi og gluggum.

Húsið að utan: Lítur vel út. Viðhaldslítið og nýlegt álklætt hús. 
Lóðin: Er frágengin, vel hirt, tyrfðar flatir og hellulagðar stéttar.

Allar nánari upplýsingar:
veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/07/202476.700.000 kr.78.500.000 kr.101.6 m2772.637 kr.
19/09/202047.500.000 kr.54.630.000 kr.101.6 m2537.696 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2020
Fasteignanúmer
2501419
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B2
Númer eignar
8
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.490.000 kr.

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Urriðaholtsstræti 32
Opið hús:04. júní kl 17:00-17:30
Orkureitur D2 603 ný .jpg
Urriðaholtsstræti 32
210 Garðabær
140.3 m2
Fjölbýlishús
423
840 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbrekkur 28
Húsafell úti forsiða .jpg
Skoða eignina Hraunbrekkur 28
Hraunbrekkur 28
320 Reykholt í Borgarfirði
128.8 m2
Sumarhús
44
698 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Unnardalur 9E
Unnardalur forsíða jpg.jpg
Skoða eignina Unnardalur 9E
Unnardalur 9E
260 Reykjanesbær
88.4 m2
Fjölbýlishús
413
678 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Naustabryggja 4
Til leigu
Bílastæði
Skoða eignina Naustabryggja 4
Naustabryggja 4
110 Reykjavík
100.3 m2
Fjölbýlishús
31
Fasteignamat 76.300.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin