Til leigu 153 m² vönduð skrifstofuhæð að meðtalinni sameign á 3. hæð við Ingólfsstræti 3 í Reykjavík. Ekki vsk húsnæði.
Húsnæðið getur hentað undir ýmsa starfsemi.
Húsnæðið skiptist í opið vinnurými, tvær skrifstofur, fundarherbergi, kaffikrók, salerni með sturtu og tvær skjalageymslur. Auðvelt er að bæta við fleiri skrifstofum eða setja upp létta veggi í opna rýminu.
Flísar á gólfi, lagnastokkar á veggjum og kerfisloft með lýsingu.
Húsnæðið er nýmálað og yfirfarið.
Við leigufjárhæð bætist rekstrarkostnaður.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Axel Ólafsson í síma 661-2507, axel@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.