Fasteignaleitin
Skráð 15. maí 2024
Deila eign
Deila

Fagrahlíð

Jörð/LóðSuðurland/Hvolsvöllur-861
5 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
159.900.000 kr.
Fasteignamat
32.209.000 kr.
Brunabótamat
82.690.000 kr.
Mynd af Embla Torfadóttir
Embla Torfadóttir
Tengiliður seljanda
Byggt 1936
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
F2193602
Húsgerð
Jörð/Lóð
Svalir
nei
Inngangur
Sameiginlegur

Gullfalleg 4,24 ha jörð í Fljótshlíð. Gistiheimili, 3 íbúðir, starfsmannaaðstaða, þvottahús, geymsla. Tilkomumikið útsýni, blómstrandi ferðaþjónusta, miklir vaxtamöguleikar. Lánamöguleikar frá IMIROX.

Fagrahlíð, staðsett í Fljótshlíð, er fallegt 4,24ha land í Fljótshlíð með fallegu uppgerðu gistihúsi sem skipt er upp í 3 íbúðir: stúdíó íbúð, 3ja herbergja íbúð, og 4ra herbergja íbúð. Alls getur verið útseld svefnaðstaða fyrir 16 manns (auk starfsmannaaðstöðu), en er nýtt í dag fyrir 14 rúm. Frá 2010 er þar rekin ferðaþjónusta undir nafninu Fagrahlid Guesthouse, og er starfsemin í miklum blóma með sterka bókunarstöðu yfir sumartímann. Íbúðarhúsið er í góðu viðhandi og er að mestu leyti endurnýjað. Það er á tveimur hæðum, samtals 156,4fm, og aðrir húsakostir eru samtals um 285,8fm. Landið liggur einstaklega vel í fagurri hlíð, umlukið fallegum trjágróðri og ræktuðum túnum. Efst í landinu er tilkomumikið útsýnissvæði sem hentar einstaklega vel til uppbyggingar á nýju hóteli, gistihúsi, þjónustumiðstöð, eða stórum sumarbústað.  Útsýni frá Fögruhlíð er einstakt, frá Mýrdals-og Eyjafjallajökli til austurs, Vestmannaeyjar í hásuður ásamt Suðurlandsundirlendinu.  Stutt er í alla þjónustu á Hvolsvelli, um 7 km á malbikuðum þjóðvegi, með sundlaug, verslun, þjónustu, og afþreyingu fyrir ferðamenn.

4ra herbergja íbúð: er á efri hæð, gengið inn í forstofu, og eru í henni 3 svefnherbergi með tveimur rúmum hvert, öll með sér handlaug. Stofa, borðstofa og eldhús eru saman eitt rými. Eldhús með vandaða Bulthaup innréttingu frá Eirvík, og vönduð Siemens raftæki. Þar er uppþvottavél. Eitt baðherbergi með sturtu. Svefnpláss fyrir 6.  Stórbrotið útsýni úr stofu og eldhúsi, sem og ef gengið er úr stofu út á sólpall í austur út frá stofunni, en þar er óhindrað útsýni til allra átta, og horft yfir Eyjafjallajökul, Mýrdalsjökul, og Vestmannaeyjar. Sólpallar umlykja húsið og snúa til austurs, suðurs og vesturs. Búið er að endurnýja allt utanhúss, m.a. einangra veggi, skipta um glugga og gler, og klæða með áli. Á sólpalli er heitur pottur.

3ja herbergja íbúð: er á neðri hæð með sér inngangi.  Í henni eru 2 svefnherbergi, annað með 2 rúmum og hitt með 2 kojum. Samtals svefnpláss fyrir 6.  Stofa og eldhús í opnu rými, og baðherbergi með sturtu.

Stúdíó íbúð: er á neðri hæð með sér inngangi.  Alrými sem er stofa, eldhús og tvöfallt rúm, en í stofu er hægt að hafa svefnsófa fyrir 2, koju fyrir 2, eða sófa. Í dag er íbúðin nýtt með 2 svefnpláss en var áður fyrir 4.  

Starfsmannaaðstaða: Hluti fjárhúsa er nýttur sem starfsmannaaðstaða, svefnaðstaða, og þvottarými, auk stórrar geymslu. Þar er svefnpláss fyrir 2.

Útihúsin: Miklir möguleikar felast í því að gera upp fjárhúsin, hlöðuna, og vélageymslu. Í framtíðinni væri hægt að nýta þennan húsakost undir starfsemi ferðaþjónustunnar, enda liggja húsin á góðum stað við íbúðarhúsið. 

Frekari uppbygging: hugmyndir eru um nýtt gistihús efst á jörðinni, og allt að 10 smáhýsi á grónum túnum.

Ferðaþjónusta er rekin í Fögruhlíð og er Fljótshlíðin einn af sögufrægustu stöðum Íslands.  Staðsetning Fögruhlíðar er einstök, enda liggur landið í gróinni og friðsælli hlíð, utarlega í Fljótshlíð, með óhindrað útsýni. Jörðin býður upp á mikla stækkunarmöguleika á sviði ferðaþjónustu. Meðal annars hefur verið samþykkt að byggja brú fyrir bílaumferð yfir Markarfljótið þannig að leið opnast yfir í Þórsmörk, Fljótshlíðarmegin. Þá er Kötlu-Jarðvangur (Katla Geopark) í mikilli uppbyggingu. Ekki er langt í Seljalandsfoss, Njáluslóð, Seljavallalaug, Skógafoss og fleiri perlur. Hvolsvöllur er orðinn umsvifamikill bær í ferðaþjónustu með Lava centre og mikla möguleika á dagsferðum upp á hálendið fyrir ferðamenn.

 

Fjármögnun: IMIROX ehf. býður lögaðilum viðbótarlán á þessa eign. Frekari upplýsingar um fasteignalán IMIROX á www.imirox.is.

 

Vinsamlegast sendið fyrirspurnir varðandi eignina á info@titaya.com eða hringið í síma 775-3993.
Titaya ehf. er fasteignafélag og hefur margar eignir úr eignasafni í söluferli.

Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fagrahlíð 0
Skoða eignina Fagrahlíð 0
Fagrahlíð 0
861 Hvolsvöllur
315442.2 m2
Jörð/Lóð
27
1 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Fagrahlíð 0
Skoða eignina Fagrahlíð 0
Fagrahlíð 0
861 Hvolsvöllur
315442.2 m2
Jörð/Lóð
1 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Goðaland
Skoða eignina Goðaland
Goðaland
861 Hvolsvöllur
268 m2
Jörð/Lóð
129
616 þ.kr./m2
165.000.000 kr.
Skoða eignina Flókastaðir Fljótshlíð
Bílskúr
Flókastaðir Fljótshlíð
861 Hvolsvöllur
814 m2
Jörð/Lóð
215 þ.kr./m2
175.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache