Fasteignaleitin
Skráð 14. júlí 2026

Grensásvegur 1E - 0409

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
87.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
85.900.000 kr.
Fermetraverð
980.594 kr./m2
Brunabótamat
54.550.000 kr.
Byggt 2022
4. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
251433044
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Viltu eignast glæsilega fullbúna íbúð með aðeins 10% ÚTBORGUN?
FasteignaBRÚ brúar bilið og með aðeins 10% útborgun getur þú eignast einstaklega glæsilega og vandaða 3j herb. íbúð á besta stað miðsvæðis í Reykjavík,  sjá nánar HÉR


Heimili fasteignasala og Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu stórglæsilega 3ja herbergja 87,6 fm íbúð á 4. hæð við Grensásveg 1E í vönduðu lyftuhúsi. Fallegar innréttingar, aukin lofthæð og frábær staðsetning. 

*** Bókið einkaskoðun HÉR ***

Nánari lýsing íbúðar 409.
Komið er inn úr forstofu í stórt bjart opið rými sem er eldhús, stofa og borðstofa, parket á gólfi. Góður fataskápur er við forstofuna. Rúmgott bjart eldhús með sérsmíðaðri innréttingu, eyju og vönduðum Bosch tækjum, ísskápur og uppþvottavél fylgja. Úr stofunni er útgengt út á stórar svalir í vestur. Svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi. Stórt parketlagt hjónaherbergi með fataherbergi innaf. Sérlega glæsilegt og rúmgott baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, innrétting og sturta sem gengið er inní. Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.
Myndir eru úr sambærilegri íbúð.

Íbúðin er sérlega vel skipulögð og björt, aukin lofthæð, gólfsíðir gluggar og gólfhiti er í öllum gólfum. í kjallara er sérgeymsla íbúðar og stór sameiginleg hjólageymsla. 

Bílakjallari.
Í bílakjallara eru 183 bílastæði sem eru til útleigu til lengri eða skemmri tíma, og einnig er hægt að greiða fyrir stæði eftir tímamæli innan dagsins. Inn- og útkeyrsla er Skeifumegin við húsið. Allar greiðslur fyrir stæði fara í gegnum Parka sem gerir allt utanumhald einfalt og auðvelt. Í bílakjallara er aðgengi að bílastæðum þar sem búið er að koma upp ON hleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla og möguleiki á deilibílum frá Brimborg fyrir íbúa til daglegra nota.


Allar frekari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir fasteignasali sími 898-2017 netfang as@heimili.is

Einstök staðsetning við Laugardalinn þar sem er mjög mikið úrval verslanna og þjónustu í Skeifunni, Glæsibæ, Ármúla og víðar. Þar má telja læknisþjónustu, heilsugæslu, matvöruverslanir, sérverslanir, veitingastaði, líkamsrækt, samgöngutengingar og grunn- og framhaldsskólar eru í göngufæri.


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugarnesvegur 44
Laugarnesvegur 44
105 Reykjavík
70.3 m2
Fjölbýlishús
311
895 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Stakkholt 2b (íbúð501)
Stakkholt Aðalmynd.jpg
Stakkholt 2b (íbúð501)
105 Reykjavík
104.8 m2
Fjölbýlishús
312
858 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (417)
Hleðslustöð
Selector1.jpg
Skoða eignina Laugaborg (417)
Laugaborg (417)
105 Reykjavík
113.3 m2
Fjölbýlishús
3
988 þ.kr./m2
111.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (0227)
Hleðslustöð
DJI_0824_v2.jpg
Skoða eignina Laugaborg (0227)
Laugaborg (0227)
105 Reykjavík
81.6 m2
Fjölbýlishús
312
998 þ.kr./m2
81.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin