Skógræktarjörðin Jódísarstaðir við Skjálfandafljót í Aðaldal.
Jörðin Bæjarstæði jarðarinnar er á fallegum stað inni í dalverpi sem nefnist Skriðuhverfi, og Jódísarstaðir eru syðsti bærinn á svæðinu og því mjög friðsæll staður. Ræktað land (tún) voru áður um 24ha en hluti þeirra er nú kominn undir skógrækt og önnur í órækt en um 15 ha af túnum eru nytjuð í dag. Stór hluti jarðarinnar er hins vegar ræktanlegur og er heildarstærð jarðarinnar talin um 400 ha. Jörðin nær uppúr dalverpinu til vesturs og út í mitt Skjálfandafljót sem marka vestur landamerki jarðarinnar. Skógrækt hófst að Jódísarstöðum árið 1988 og þá í hlíðum Mánafells við Skjálfandafljót og þar nú um 30 ha af skóglendi. Í skóginum hafa verið stofnaðar 7 sumarhúsalóðir sem seldar hafa verið út úr jörðinni. Í túnum og högum í kringum bæjarstæðið er einnig búið setja niður mikið af plöntum á um 30 ha svæði og því er heildarstærð skógræktarinnar í kringum 60 ha og stór hluti hennar tilbúinn til nytja. Allt í allt er búið að setja niður um 250.000 plöntur á jörðinni en einnig eru miklir möguleikar á frekari skógrækt. Allt í kringum bæjarstæðið er jafnframt mikill gróður og allt umhverfið hið fallegasta.
Íbúðarhúsið er steypt, byggt árið 1974 og er á tveimur hæðum. Efri hæð skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergið, sjónvarpsstofu, fjögur svefnherbergi og sólskála. Neðri hæð skiptist í forstofu/þvottahús, tvö herbergi, geymslu, baðherbergi og stórt geymslurými og vinnustofu. Steyptar svalir eru á austuhlið hússins og með hluta suðurhliðar. Góður sólpallur er vestan við húsið og út á hann er gengið úr sólskála til suðurs. Gott útsýni er úr húsinu til norðurs út á Skjálfanda. Hitaveita er í húsinu.
Útihúsin Aðalútihúsin standa sunnan við húsið og samanstanda af fjárhúsum og fjósi með hlöðu og tengigangi á milli. Gott geymslupláss er í hlöðu og þar er gólf steypt. Fjárhúsin eru með áburðarkjallara og þar eru steyptar grindur. Kjallarinn hefur verið tæmdur og nýtist sem geymsla í dag og gólf er steypt í kjallarnum. Húsið var byggt árið 1986, þrístæð fjárhús fyrir um 300 fjár. Auðvelt væri að hefja fjárbúskap að nýju en fjósið sem slíkt verður ekki notað fyrir mjólkurkýr en ágætt hús engu að síður. Vélageymsla byggð árið 1970 stendur norðan og neðan við íbúðarhúsið og í henni er hiti (affallið frá húsinu) og í henni er einnig rafmagn, gryfja og ágæt innkeyrsluhurð. Nýlegt reykhús stendur svo norðan við íbúðarhúsið.
Hlunnindi Veiðhlunnindi eru arðgreiðslur úr Skjálfandafljóti en jafnframt er einhver gæsa- og rjúpnaveiði á jörðinni og malartekja úr Skjálfandafljóti.
Jódísarstaðir er sértaklega vel staðsett jörð í Aðaldal, í hvarfi frá þjóðveginum en stutt frá honum engu að síður. 30 km eru til Húsavíkur og um 45 km til Akureyrar. Frekari upplýsingar veitir Sigurður Sigurðsson í síma 862 1013 eða siggi@kaupa.is
Þak, gluggar, hurðar, vatns- og raflagnir eru upprunalegar. Tími kominn múrviðgerðir. Þök þarfnast málningar.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.