Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun og Ólafur H. Guðgeirsson kynna til sölu mjög fallega og vel skipulagaða þriggja herbergja útsýnisíbúð á annarri hæð í lyftuhúsi við Löngulínu 14 í Garðabæ. Stæði í bílakjallara fylgir. Eignin skráð skv fmr 129,9fm og þar af er geymsla 12,5fm. Eignin nýtur einstaks útsýnis. Húsið stendur við hafflötinn og er því í nánum tengslum við sjóinn, fuglalíf og náttúru. Sjálandshverfið er sérstaklega vel staðsett og öll þjónusta í næsta nágrenni. Grunnskóli og leikskóli og sérgerð ylströnd eru í hverfinu. Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is
Til að undirbúa kauptilboð þá er skynsamlegt að fá söluverðmat á þinni eign, þér að kostnaðarlausu. Hringið og ræðið málið í síma 663-2508.Bílastæði eru við aðalinngang hússins, en gengið er inn í snyrtilega sameign með flísum á gólfum og teppum á stiga.
Í íbúðinni er komið inn í forstofu eða gang þar sem herbergi eru til hægri, baðherbergi til vinstri og fataskápur. Gangur er opinn til alrýmis.
Stofan er mjög rúmgóð og rúmar bæði borðstofu og setustofu, einstakt útsýni er út um stofuglugga yfir Arnarnesvoginn. Rúmgóðar svalir til suðvesturs frá stofu. Eldhúsið er opið með fallegri hvítri innréttingu með góðu skápaplássi; nýjar borðplötur. Ofninn er í vinnuhæð, stórt span helluborð og uppþvottavél, öll tæki frá 2023. Flísar á eldhúsgólfi.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott með stórum fataskápum, barnaherbergi er sömuleiðis rúmgott með góðum fataskáp. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með bæði baðkari og sturtu, vegghengt salerni, handklæðaofn, falleg ljós innrétting og gott skápapláss. Innaf baðherbergi er gott þvottaherbergi með innréttingu og flísum á gólfi.
Allar hurðir eru hvítar ásamt skápum. Fallegt harðparket með breiðum borðum er á öllum meginrýmum, flísar á eldhúsi, baði og þvottahúsi.
Geymsla er rúmgóð 12,5 fm geymsla í kjallara hússins. Sameign er mjög snyrtileg, en þar er sameiginleg geymsla fyrir útihúsgögn og einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Eigninni fylgir stæði í lokuðum bílakjallara, lagnir fyrir hleðslustöð að stæði.
Mjög falleg og hlýleg íbúð með óhindruðu sjávarútsýni á þessum eftirsótta stað í Sjálandinu, vert að skoða.Kostnaður kaupanda af kaupum:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegi 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is ***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook