Vatnsendi - Ólafsfirði. Til sölu jörðin Vatnsendi í Ólafsfirði, jörðin er um 317 hektarar að stærð, þar af eru 13,3 hektarar skráðir sem ræktað land. Á jörðinni stendur 88,6 fm. sumarhús sem var byggt 2012, falleg eign á einstökum stað. Silungsveiðiréttur fylgir eigninni.
Bústaðurinn er með þremur svefnherbergjum, rúmgóðu baðherbergi með sturtu, eldhús, borðstofa og stofa eru í einu rými, upptekin loft og stórir og góðir gluggar í alrými þar sem hægt er að njóta dásamlegs útsýnis til fulls. Stór og góð verönd er við húsið og þar er heitur pottur.
Nánari lýsing; Forstofa, flísar á gólfi og fatahengi Svefnherbergi, eru þrjú, öll með parketi á gólfi og fataskápum. Baðherbergi, flísar á gólfi og hluta veggja, góð sturta, útgönguhurð út á verönd þar sem er heitur pottur. Alrými, stofa eldhús og borðstofa, parket á gólfi, upptekin loft, eikar eldhúsinnrétting. Þvottahús/geymsla, gengið inn af verönd, flísar á gólfi og hillur. Inntaksrými lagna. Verönd til suðurs og vesturs, heitur pottur og frábært útsýni.
Annað; - Gólfhiti - Stór verönd með heitum potti. - Innbú getur fylgt með við kaupin. - Húsið hannað með algilda hönnun í huga.
Eins og áður sagði er jörðin 317 hektarar, þar af eru 13,3 hektara sem eru skráðir sem ræktað land. Henni fylgir einnig silungsveiðiréttur í vatninu sem gefur arðgreiðslur auk þess að landeigendur hafa skv. samningi rétt til að veiða í vatninu. Jörðin hentar einnig vel til skotveiði, auk þess er mikil berjaspretta á svæðinu. Fyrir allmörgum árum var borað fyrir heitu vatni og fannst um 34 gráðu heitt vatn, það er notað til að hita upp húsið en í því eru gólfhitalagnir. Einnig er það notað sem neysluvatn en til að hækka hitann er það kynnt upp með rafmagni.
Arðgreiðslur frá Veiðifélagi Ólafsfjarðar: 2025 - kr. 144.320 2024 - kr. 135.300 2023 - kr. 102.500 Eigendur Vatnsenda hafa veiðirétt í vatninu alla þriðjudaga.
Gallar
Gler vantar í lítinn glugga á geymslu.
EIGNAVER 460-6060.
Vatnsendi - Ólafsfirði. Til sölu jörðin Vatnsendi í Ólafsfirði, jörðin er um 317 hektarar að stærð, þar af eru 13,3 hektarar skráðir sem ræktað land. Á jörðinni stendur 88,6 fm. sumarhús sem var byggt 2012, falleg eign á einstökum stað. Silungsveiðiréttur fylgir eigninni.
Bústaðurinn er með þremur svefnherbergjum, rúmgóðu baðherbergi með sturtu, eldhús, borðstofa og stofa eru í einu rými, upptekin loft og stórir og góðir gluggar í alrými þar sem hægt er að njóta dásamlegs útsýnis til fulls. Stór og góð verönd er við húsið og þar er heitur pottur.
Nánari lýsing; Forstofa, flísar á gólfi og fatahengi Svefnherbergi, eru þrjú, öll með parketi á gólfi og fataskápum. Baðherbergi, flísar á gólfi og hluta veggja, góð sturta, útgönguhurð út á verönd þar sem er heitur pottur. Alrými, stofa eldhús og borðstofa, parket á gólfi, upptekin loft, eikar eldhúsinnrétting. Þvottahús/geymsla, gengið inn af verönd, flísar á gólfi og hillur. Inntaksrými lagna. Verönd til suðurs og vesturs, heitur pottur og frábært útsýni.
Annað; - Gólfhiti - Stór verönd með heitum potti. - Innbú getur fylgt með við kaupin. - Húsið hannað með algilda hönnun í huga.
Eins og áður sagði er jörðin 317 hektarar, þar af eru 13,3 hektara sem eru skráðir sem ræktað land. Henni fylgir einnig silungsveiðiréttur í vatninu sem gefur arðgreiðslur auk þess að landeigendur hafa skv. samningi rétt til að veiða í vatninu. Jörðin hentar einnig vel til skotveiði, auk þess er mikil berjaspretta á svæðinu. Fyrir allmörgum árum var borað fyrir heitu vatni og fannst um 34 gráðu heitt vatn, það er notað til að hita upp húsið en í því eru gólfhitalagnir. Einnig er það notað sem neysluvatn en til að hækka hitann er það kynnt upp með rafmagni.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.