Skráð 3. nóv. 2025

Vaðlar

Jörð/LóðVestfirðir/Flateyri-426
1,517.6 m2
11 Herb.
8 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
250.000.000 kr.
Fermetraverð
164.734 kr./m2
Fasteignamat
71.367.000 kr.
Brunabótamat
358.075.000 kr.
Mynd af Björgvin Guðjónsson
Björgvin Guðjónsson
Þvottahús
Sérinng.
Fasteignanúmer
2126183
Húsgerð
Jörð/Lóð
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð
100
Upphitun
Rafmagn
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Aspest er í veggjum í eldra íbúðarhúsi og vart hefur orðið við músagang þar í einu rými.
Gólf í iðnaðarhúsnæði er í samræmi við fyrri notkun hússins. Innréttingar í húsinu sem sjást á myndum í auglýsingu eignarinnar fylgja ekki með.
Eignatorg kynnir: Lögbýlið Vaðlar Ísafjarðarbæ, landnr. L141026. Um er að ræða jörð með góðum húsakosti. Mjög snyrtilegt og skemmtilega skipulagt íbúðarhús. Eldra íbúðarhús sem býður upp á góða nýtingarmöguleika. Mjög gott iðnaðarhúsnæði sem var áður nýtt sem lausagöngufjós. Rafstöð sem mögulegt er að stækka. Til staðar er grunnur / kjallari undir u.þ.b. 508,2 fm atvinnuhúsnæði. Gert er ráð fyrir að nýbygging sé samtengd iðnaðarhúsnæðinu og innangengt á milli.
Gróið land jarðarinnar er talið vera nærri 170 hektarar og ræktað land þar til viðbótar 15 hektarar.
Ljósleiðari kominn inn í nýrra íbúðarhús og tengdur. Gert er ráð fyrir ljósleiðaratengingiu inn í eldra íbúðarhús. 3ja fasa rafmagn frá Orkubúi Vestfjarða. Mjög gott, lokað vatnsból.
Jörðin er seld án framleiðsluréttar, áhafnar og véla.
U.þ.b. 12 km. eru á Flateyri og u.þ.b. 20 km. á Ísafjörð þar sem er öll helsta verslun og þjónusta.


Skv. skráningu Fasteignaskrár eru byggingar eftirfarandi:
Íbúðarhús byggt 1988, samtals skráð 170,5 fm.
Íbúðarhús byggt 1948, samtals skráð 128 fm en er nokkru stærra að gólfleti þar sem efri hæðin er undir súð.
Iðnaðarhúsnæði (fjós) byggt 2003, samtals 561 fm.
Véla- og verkfærageymsla byggð 1981 samtals 145 fm.
Alifuglahús byggt 1963, samtals 11,5 fm.
Rafstöð byggð 1965 samtals 14,9 fm.
Eldri útihús byggð á árunum 1949 - 1965 samtals 525,7 fm
Til staðar er grunnur undir atvinnuhúsnæði sem er skv. teikningum 508,2 fm.
Ræktað land jarðarinnar er 15 - 16 hektarar.
Gróið land jarðarinnar er talið vera nærri 170 hektarar og ræktað land er þar til viðbóar 15 hektarar.

Nánari lýsing:
Íbúðarhúsið er timburhús á steyptum grunni og skiptist í Forstofu, rúmgóða og bjarta stofu, bjarta sólstofu, gott eldhús, glæsilegt, rúmgott baðherbergi, þrjú svefnherbergi (upphaflega fjögur svefnherbergi og auðvelt að breyta til baka), þvottahús og bakinngang. Í hluta hússins er uppsett milliloft sem hentar vel sem skrifstofuaðstaða eða svefnaðstaða.
Eldra íbúðarhúsið  fær rafmagn frá núverandi rafstöð. Húsið er upphaflega timburhús en síðar eru útveggir steyptir. Húsið er á tveimur hæðum og skiptist í forstofu, stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslur.
Iðnaðarhúsnæðið er stálgrindarhús á steyptum grunni og var nýtt sem lausagöngufjós. Ekki er haughús undir iðnaðarhúsnæðinu nema að mjög litlu leiti. Innkeyrsluhurð er á gafli hússins (H3,60 m. B 3 m.) Eftirlitsmyndavélakerfi er í húsinu. Við húsið er grunnur að húsi sem skv. teikningum tengist iðnaðarhúsnæðinu.
Véla- og verkfærageymsla er einföld að gerð en nýtist vel sem vinnuaðstaða eða geymsla.
Rafstöðin framleiðir í dag að hámarki 12 kw. 3x220 v. og er rafmagnið notað í eldra íbúðarhúsi og eldri útihúsum, en í undirbúningi er endurnýjun og stækkun stöðvarinnar upp í nærri 60 kw. framleiðslu. Til staðar eru rör í virkjunina sem mögulegt er að fá keypt.
Eldri útihús eru sambyggð og er mögulegt að nýta þau með ýmsum hætti.

Góð malarnáma er á jörðinni.

Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0 - 1,8%. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin