SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR SÉRHÆÐIR Í LITLU FJÖLBÝLI Á FRÁBÆRUM STAÐ* *KJALLARI* *
ÞAKSVALIR* *SJÁVARSÝN* *LA MATA STRÖNDIN Í GÖNGUFÆRI*Glæsilegar íbúðir í Torrevieja aðeins 200 m frá La Mata ströndinni. Um er að ræða lítið fjölbýli á tveimur hæðum með 20 íbúðum. Með neðri hæðum fylgir opið rými í kjallara og með efri hæðum eru góðar þaksvalir. Glæsilegt útsýni til sjávar. Glæsileg La Mata ströndin er í göngufæri sem og fjöldi veitingastaða og verslana. Miðbær Torrevieja er ekki langt undan, aðeins örfárra mínútna akstur eða hjólatúr.
Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, GSM 0034 615 112 869. berta@spanareignir.is.Nánari lýsing:Stofa, borðstofa og eldhús í rúmgóðu opnu rými. Gott útgengi úr stofu út á rúmgóða verönd/sér garð með lítilli einkasundlaug (neðri hæð) eða svalir (efri hæð). Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi, þar af er sér baðherbergi inn af hjónasvítu. Með íbúðum á jarðhæð er opið rými í kjallara með gluggum sem hægt er að innrétta sem auka svefnherbergi eða sjónvarpsherbergi/hobbýherbergi. Með efri hæðum er góð þakverönd með frábæru útsýni yfir sjóinn. Sameiginlegur sundlaugargarður og bílastæði og geymsla í lokuðum kjallara.
Hausttilboð: Siemens heimilistækjapakki fylgir öllum eignum. Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d. La Marquesa og La Finca. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas. La Mata ströndin í Torrevieja er í göngufæri og ca. 12 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða glæsilega hannaðar eignir á frábærum stað í Torrevieja. Einstakt tækifæri fyrir fólk sem vill njóta lífsins í sólinni með gyllta sandströnd og bæjarlíf Torrevieja alveg við þröskuldinn.
Verð miðað við gengi 1Evra=138ISK
Frá 550.000 evrur (ISK. 75.900.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Bein kaup frá traustum og öruggum byggingaraðila með áratuga reynslu. Hafið samband og bókið einkaviðtal.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, bílastæði, þakverönd, air con, ný eign, strönd,
Svæði: Costa Blanca, Torrevieja,