Fasteignaleitin
Skráð 29. apríl 2026

Frostafold 30

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
100.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
76.700.000 kr.
Fermetraverð
761.668 kr./m2
Fasteignamat
68.300.000 kr.
Brunabótamat
50.840.000 kr.
Mynd af Benedikt Ólafsson
Benedikt Ólafsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2041842
Landnúmer
110111
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
sagt í lagi
Raflagnir
sagt í lagi.
Frárennslislagnir
sagt í lagi
Gluggar / Gler
sagt í lagi
Þak
sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir
Upphitun
sameiginlegur
Inngangur
Sameiginlegur
Kvöð / kvaðir
Óheimilt er að selja bílskúr eða aðra aukabyggingu frá því íbúðarhúsi, sem byggingin á að tilheyra samkvæmt samþykktu skipulagi.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:
Í einkasölu fallega og vel skipulagða 100,7 fm 3ja herbergja íbúð á efstu hæð (3.hæð) með útsýni og suðursvölum á frábærum stað í Grafarvogi. Um er að ræða bjarta og einstaklega vel með farna eign, sem hefur verið endurnýjuð að hluta. Eigninni fylgir 21 fm bílskúr með geymslulofti og rafhleðslustöð og þar er ný rafmagnstafla (3ja fasa). Einstaklega góð staðsetning með nálægð við náttúru og alla þjónustu.
Eignin, Frostafold 30, 112, Reykjavík, ásamt öllu sem henni fylgir og fylgja ber að engu undanskildu, þ.m.t. tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi. Fastanúmer eignar: F204-1842.

Ásett verð: 76.700.000 kr.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit

Helstu kostir:
  • Sér bílskúr (21fm) með rafhleðslustöð og nýrri rafmagnstöflu
  • Björt stofa með útgengi á suðursvalir
  • Mjög vel með farin eign
  • Góð staðsetning nálægt náttúru og þjónustu

Eignin skiptist í:
Forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, hjónaherbergi, barnaherbergi, baðherbergi, svalir, geymslu innan íbúðar og bílskúr.

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð með fatahengi.
Eldhús: Falleg og nýleg innrétting með góðu skápaplássi og notalegum borðkrók við glugga, parket á gólfi. 
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð með útgengi á suðursvalir, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum skápum og parketi.
Barnaherbergi: Rúmgott barnaherbergi með parketi.
Baðherbergi: Flísalagt með baðkari og sturtu, handklæðaofn, upphengt salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svalir: Suðursvalir.
Geymsla:  Sér geymsla innan íbúðar.
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Bílskúr: 21fm bílskúr í lengju á móti húsinu með rafhleðslustöð, geymslulofti og 3ja fasa rafmagni. 

Endurbætur og viðhald:
  • Eldhús og baðherbergi endurnýjað árið 2020.
  • Nýtt parket og flísar árið 2020.
  • Vatnslagnir hreinsaðar og fóðraðar árið 2025.
  • Rafhleðslustöð og ný rafmagnstafla í bílskúr.
  • Þak á bílskúr endurbætt að hluta árið 2023.
  • Húsið málað að utan árið 2024.

Staðsetning:
Eignin er á vinsælum og fjölskylduvænum stað í Grafarvogi, með stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Nálægð við fallega náttúru, s.s. Gufunes, voginn, Geldinganes og Korpu, skapar góð tækifæri til útivistar og hreyfingar.

Nánari upplýsingar veita:
Hallveig Jónsdóttir, Nemi í löggildingu, í síma 699-0496, netfang hallveig@stofnfasteignasala.is
Benedikt Ólafsson, Löggiltur fasteignasali, í síma 661-7788, netfang bo@stofnfasteignasala.is

Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/12/202039.100.000 kr.44.500.000 kr.100.7 m2441.906 kr.
19/10/201625.800.000 kr.34.300.000 kr.100.7 m2340.615 kr.
30/07/200717.955.000 kr.22.500.000 kr.100.7 m2223.435 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1989
21 m2
Fasteignanúmer
2041842
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.890.000 kr.

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kleppsvegur 138
Skoða eignina Kleppsvegur 138
Kleppsvegur 138
104 Reykjavík
109.4 m2
Fjölbýlishús
413
712 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Kristnibraut 75
Skoða eignina Kristnibraut 75
Kristnibraut 75
113 Reykjavík
119.1 m2
Fjölbýlishús
413
828 þ.kr./m2
98.600.000 kr.
Skoða eignina Holtsgata 3
Bílastæði
Skoða eignina Holtsgata 3
Holtsgata 3
101 Reykjavík
68.8 m2
Fjölbýlishús
211
1189 þ.kr./m2
81.800.000 kr.
Skoða eignina Þrastarás 18
Opið hús:04. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Þrastarás 18
Þrastarás 18
221 Hafnarfjörður
67.8 m2
Fjölbýlishús
211
883 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin