
Heima fasteignasala kynnir Valshlíð 1 – Íbúð 203.
Verð miðast við Sameignaleið S8 ehf. – 75% kaup. Fullt verð: 119.900.000 kr.
Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Afhending í lok ágúst 2025.
S8-Sameign í boði:
Sendu fyrirspurn á heimaf@heimaf.is eða hringdu í síma 5832000. Hafðu samband og bókaðu skoðun hjá okkur.
Á sölusíðu eignarinnar færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.
Nánari upplýsingar veita:
Aron M. Smárason lfs. í síma 5832001, eða á aron@heimaf.is
Gegnumlýst 4ja herbergja íbúð á 2. hæð á vesturhlið Hlíðarhorns, 119,2 fm (þar af 7,2 fm geymsla í kjallara). Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á vestursvalir, hjónaherbergi með útgengi á austursvalir, 2 svefnherbergi, baðherbergi og sérstakt þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens, ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og gólfefni frá Álfaborg. Sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema: Mjöll 2.
Í anddyri eru góðir fataskápar. Bjart alrými með eldhúsi með eyju og stofu/borðstofu með útgengi á vestursvalir. Ljós eldhúsinnrétting, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og blöndunartæki úr burstuðu stáli. Hjónaherbergi með fataskápum og útgengi á austursvalir. Tvö svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með walk-in sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar, ljós innrétting og speglaskápur. Blöndunartæki úr burstuðu stáli. Þvottaherbergi með vaski, ljósri innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Sérgeymsla í kjallara (0006). Sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með samnýtingu þar sem íbúar hafa forgang.
Verð miðast við Sameignaleið S8 ehf. – 75% kaup. Fullt verð: 119.900.000 kr.
ATH. Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.
Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.
Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.
ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðilaa og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.
Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
108 | 54 | 57,9 | ||
225 | 94,9 | 73,9 | ||
260 | 212 | 99,9 | ||
102 | 90,5 | 79,9 | ||
221 | 94,1 | 79 | ||
221 | 110,2 | 83,6 |