Fasteignaleitin
Skráð 16. sept. 2026

Flatasel 6

EinbýlishúsAusturland/Egilsstaðir-700
180 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
78.350.000 kr.
Brunabótamat
94.700.000 kr.
Mynd af Elín Káradóttir
Elín Káradóttir
Byggt 2006
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2290789
Landnúmer
205238
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt/þar að skoða
Raflagnir
Upprunalegt/ þarfnast yfirferðar og eða endurnýjunar
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt/þarf að skoða
Þak
Upprunalegt/þarf að skoða
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Timburverönd
Lóð
0
Upphitun
Hitaveita, gólfhiti neðri hæð, ofnar efri hæð
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
ATH ekki tæmandi talning, nánari upplýsingar má sjá í yfirmatsgerð dagsett 14.07.2026 - ATH upplýsingar þar eru þó ekki tæmandi: 
Húsið þarfnast alsherjar standsetningar/endurnýjunar að innanverðu.
Vatn flæddi yfir öll gólf, þó minnst í herbergi til suðurs á efri hæð. Lekinn uppgvötaðist nokkrum dögum eftir að hann varð. Í skriðkjallara var mikið vatn.
Settar voru rakaskiljur í húsið og rifið innan úr því að því marki sem nú er. Skemmdir urðu á burðarvirki, gólfum hæða, veggjum inn og í útveggi og mögulega í þakvirki. Allar innréttingar, gólfefni, veggklæðningar, raflagna efni og mögulega pípulagnir þ.m.t. gólfhitalagnir þarfnast skoðunar eða mögulega endurnýjunar. 
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu FLATASEL 6, 700 Egilsstaðir. Einbýlishús á tveimur hæðum með áföstum bílskúr.
Húsið er timburhús, byggt árið 2006, eignin skiptist í skiptist í neðri hæð 77.4 m² og efri hæð 66.9 m², ásamt bílskúr 35.7 m² samtals 180.0 m² samkvæmt fasteignayfirliti HMS.
Skipulag samkvæmt teikningu;
Neðri hæð: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, herbergi, stigahús, baðherbergi og þvottahús, bílskúr og geymsla. 
Efri hæð. Skáli/hol, þrjú herbergi og baðherbergi.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

EIGNIN VARÐ FYRIR VATNSTJÓNI, EIGNIN ÞARFNAST ALLSHERJAR STANDSETNINGAR/ENDURNÝJUNAR (ENDURBYGGINGAR) AÐ INNANVERÐU.
EIGNIN SELST Í ÞVÍ ÁSTANDI SEM HÚN ER Í OG MUN SELJANDI EKKI GERA NEINAR FREKARI ENDURBÆTUR Á HENNI FYRIR SÖLU.
ÞVÍ ER SKORAÐ Á VÆNTANLEGA KAUPENDUR AÐ KYNNA SÉR VEL ÁSTAND EIGNARINNAR FYRIR KAUPTILBOÐSGERÐ OG LEITA SÉR SÉRFRÆÐIAÐSTOÐAR UM NÁNARI SKOÐUN UM ÁSTAND EIGNAR.


Fyrirliggjandi er matsgerð matsmanna vegna tjónsins, matsgerð ásamt nánari upplýsingum má nálgast hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing: 
Neðri og efri hæð:
Búið er að fjarlægja gólfefni og farga, nema flísar eru á anddyri og þvottahúsi.
Innihurðir og karmar, búið er farga öllu nema þrem hurðum sem eru í bílskúr. Þær eru skemmdar að neðanverðu.
Útveggir og innveggir eru þiljaðir með gifsplötum. Búið er að rífa klæðningar af veggjum að hluta til.
Öll loft á neðri hæð hafa verið rifin, gifsplötur fjarlægðar, plastdúkur skorinn og einangrun fjarlægð. 
Búið er að fjarlægja flestar innréttingar úr húsinu, þær innréttingar sem eftir eru, eru flestar með skemmdum.
Á baðherbergi á neðri hæð er salerni ásamt sturtu, baðkar hefur verið losað frá vegg og dregið fram.
Bak við baðkarið er lögn sem lak, ekki hefur verið gert við lögnina. Lagnir á baðherbergi og í húsinu bæði heitt og kalt a.m.k. neysluvatnslagnir þarfnast viðgerða
og/eða endurnýjar að miklu og eða öllu leyti. Víða má sjá skemmdir í sólbekkjum, gluggi á hjónaherbergi er skemmdur.
Ummerki eru eftir vatn á stigapalli, dökkur flekkur við efra stigahlaup og stór rifa í pallinum þar sem hann hefur klofnað.
Innlagnaefni, rofar og tenglar, er hvítt af Merten gerð. Það er að mestu til staðar á efri hæð en á neðri hæð hefur það að mestu verið tekið niður.
Útihurð rekst í gólf þegar hún er opnuð. Inntaksgrind fyrir hitakerfi er í bílskúr, ryð hefur fallið á inntaksgrind.
Deiligrind fyrir gólfhitakerfi er undir stiga, stöð virkar ekki og kerfinu er nú handstýrt.
Í bílskúr eru dökkir taumar frá lofti á vegg milli hans og íbúðar. Það er á svæði á móts við herbergi á efri hæð. 
Víða í þaki eru dökkir flekkir neðan á plötum sem eru ofan á sperrum, mögulegur sveppavöxtur. 
Víða eru sýnilegir blettir undir einangrun í þaki (glerull) á rakavörn, plastdúk, þar sem vatn hefur þornað upp. 
Víðast hvar eru ummerki eftir raka og/eða sjáanlegur sveppavöxtur á kantbitum sem eru ofan á sökkulveggjum og undir útveggjum. 
Fallið er á festijárn og naglahausar, boltar og teinar teknir að ryðga. Opna þarf loft/þak með því að opna upp í þakið og fjarlægja einangrun og rakasperru og endurnýja það.
Mikilvægt er að skoða allan annan frágang á þaki að innan- og utanverðu líka. 
Skoða þarf vel öll gólf hússins bæði á neðri og efri hæð og væntanlega að skipta þeim öllum út í heild sinni ásamt burðarvirki.
Gólfplötur á efri hæð eru mis mikið skemmdar, mest í baðherbergi þar sem að þær hafa misst styrk.
Fjarlægja þarf anhýdrit lögn á neðri hæð og þá mögulega allar gólfplötur, dregara og gólfhitalögn. Skriðkjallari, loftrásir eru of litlar og ekki þrifalag eða dúkur á botni. 
Bílskúr er á steyptri plötu, gólf er ómeðhöndlað. Innangengt frá þvottahúsi í bílskúrinn. Útgengt í bakgarð. Rafmagnstafla og hitaveitu inntak. Plastvaskur á vegg. Hillur og efri skápar á veggjum.

FLATASEL 6 er tvílyft einbýlishús byggt úr timbri á steyptum skriðkjallara.
Húsið er klætt að utan með Kandadískri Hardiboard útveggjaklæðningu. Litað járn á þaki, timburgluggar og hurðar. 
Hellulögð stétt með hita og lýsingu, malbikuð bílastæði. Lóð er gróin, í órækt. Timburverönd er við húsið, heitur pottur er á verönd. Húsið stendur innst við lítin botnlanga. 
Lóð er 589.6 m² leigulóð í eigu Múlaþings, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 15.3.2006, skjal nr. 426-F-000605/2006.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer F2290789 Flatasel 6, Múlaþing.

Stærð: Íbúð 144.3 m². Bílskúr 35.7  m². Samtals 180 m².
Brunabótamat: 94.700.0000 kr.
Fasteignamat:  78.350.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2027: 76.350.000kr. 
Byggingarár: 2006.
Byggingarefni: Timbur.
Eignarhald:
01.0101- Séreign. Rými: 01.0101 Íbúð 77.4 Brúttó m². 01.0201 Íbúð 66.9 Brúttó m². 01.0102 bílgeymsla 35.7 Brúttó m².
Landeignanúmer: L205238. Íbúðarhúsalóð 589,6 m².

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/01/201938.600.000 kr.42.000.000 kr.180 m2233.333 kr.
22/11/201732.400.000 kr.18.000.000 kr.180 m2100.000 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2006
35.7 m2
Fasteignanúmer
2290789
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
16.150.000 kr.

Myndir (8)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Aftanhæð 3
Á einni hæð
Skoða eignina Aftanhæð 3
Aftanhæð 3
210 Garðabær
178.3 m2
Raðhús
513
895 þ.kr./m2
159.500.000 kr.
Skoða eignina Geithamrar 13
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Geithamrar 13
Geithamrar 13
112 Reykjavík
164.2 m2
Raðhús
614
779 þ.kr./m2
127.900.000 kr.
Skoða eignina Pálsbúð 20
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:17. sept. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Pálsbúð 20
Pálsbúð 20
815 Þorlákshöfn
190.1 m2
Einbýlishús
412
573 þ.kr./m2
109.000.000 kr.
Skoða eignina Lyngheiði 10
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Lyngheiði 10
Lyngheiði 10
810 Hveragerði
188.8 m2
Einbýlishús
514
501 þ.kr./m2
94.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin