Fasteignaleitin
Opið hús:07. apríl kl 16:15-17:00
Skráð 1. apríl 2026

Hlíðarlundur 2 - 201

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
95.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
63.900.000 kr.
Fermetraverð
669.811 kr./m2
Fasteignamat
54.750.000 kr.
Brunabótamat
53.800.000 kr.
SS
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2147622
Landnúmer
148270
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Óþekkt
Gluggar / Gler
upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Steyptar til suðvesturs
Lóð
7,96
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
- Skemmdir í parketi. 

 
Hlíðarlundur 2 - 201 - Vel skipulögð og björt 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í suðurhluta húss með sér inngangi. Heildarstærð eignar er 95,4 m². Staðsetningin er afar eftirsótt, í nálægð við leik- og grunnskóla sem og íþróttasvæði KA.

Forstofa er með flísum á gólfi, fataskáp og opnu fatahengi.
Gangur er parketlagður.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi og fataskápum. Skáparnir eru hvítir og með beyki áferð. Í hjónaherbergi er rúmgóður tvöfaldur fataskápur.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum við baðkar. Þar er innrétting í ljósum lit, upphengt salerni og baðkar með sturtutæki.
Eldhús er með parketi á gólfi og innréttingu í hvítum lit með beyki áferð. Hvítar flísar eru á milli skápa. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, auk þess sem bakaraofn er í vinnuhæð.
Stofa er parketlögð og þaðan er útgengt á svalir sem snúa til suðvesturs.
Þvottahús er flísalagt með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Bekkur með vask og hillur.
Sér geymsla er í kjallara, skráð um 9,8 m² að stærð. 

Annað:
- Tengi fyrir rafbíla við bílaplan
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Sameiginlegar geymslur í kjallara.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/06/202548.200.000 kr.57.400.000 kr.95.4 m2601.677 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tröllakór 16
Skoða eignina Tröllakór 16
Tröllakór 16
203 Kópavogur
97.9 m2
Fjölbýlishús
312
769 þ.kr./m2
75.300.000 kr.
Skoða eignina Þrastarás 46A
Skoða eignina Þrastarás 46A
Þrastarás 46A
220 Hafnarfjörður
84.5 m2
Fjölbýlishús
212
756 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabakki 10
Bílskúr
Skoða eignina Tjarnabakki 10
Tjarnabakki 10
260 Reykjanesbær
120.2 m2
Fjölbýlishús
31
540 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Sunnubraut 50
Skoða eignina Sunnubraut 50
Sunnubraut 50
230 Reykjanesbær
93.5 m2
Hæð
312
599 þ.kr./m2
56.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin