Hugguleg fjögurra herbergja íbúð á 2.hæð við Lambamýri 5 á Álftanesi. Íbúðin er 105,6fm þar af geymsla 8,4fm auk sérstæðis í lokaðri bílageymslu. Mikil lofthæð og sérloftskiptikerfi. Búnaður er af vandaðri gerð og allur frágangur til fyrirmyndar. Byggingaraðili Þingvangur ehf. Arkitekt er Nordic arkitektar ehf og verkfræðihönnun er frá Conís ehf.Íbúðin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamings. Nánari upplýsingar má fá hjá fasteignasala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.isForstofa flísar á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi er inn af forstofu með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús parket á gólfi, dökk innrétting, gott borðpláss og tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými, parket á gólfi, útgengt á stórar suður svalir og svalir til norðurs.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og stórum fataskáp.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, rúmgóð sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús flísar á gólfi, gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara, ágætt skápapláss og vaskur.
Bílastæði er í bílageymslu með möguleika á hleðslu rafmagnsbíla. Stæðið er merkt B13.
Almennt um íbúðirnar frá byggingarlýsingu: Allar innréttingar að undanskildum innréttingum á baðherbergjum eru sér smíðaðar, framleiddar og uppsettar af Voké III. Eldhús og fataskápar ná upp í loft. Borðplata er vönduð 19 mm. ljós með marmaraútliti. Vaskur og blöndunartæki eru svört og höldur á neðri skápum svartar. Eldhúsinnréttingunum fylgir innbyggður ísskápur með frystir, svartur ofn, innbyggð uppþvottavél og kolasíu vifta. Eldhústæki eru af tegundinni AEG, Electrolux eða sambærilegt en viftan af gerðinni Elica Lane. Baðherbergi eru flísalögð og þvottahús þar sem við á en að öðru leyti eru íbúðirnar afhentar án gólfefna. Baðherbergi eru flest frá Boxen og koma forsmíðuð að fullu frá verksmiðju og hífð inn í hús samhliða uppsteypu. Búnaður er af vandaðri gerð og allur frágangur til fyrirmyndar. Hvítar innréttingar. Tæki og salerni frá Grohe. Innihurðir eru hvítar yfirfelldar hurðir frá Parka eða sambærilegt. Útidyr eru tré frá Swedoor, söluaðili Húsasmiðjan ehf. Sér þvottahús eru í flestum íbúðum, þá flísalögð með sömu gólfflísum og eru á baðherbergjunum.
Burðarkerfi húsanna eru steinsteypt. Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með vönduðum álklæðningum og lerki timburklæðningum. Allir gluggar eru úr ál/tré. Þakplata hússins er steypt, einangruð að ofanverðu og með heilsoðnum pappa. Svalir eru forsteyptar með sléttu yfirborði. Handrið utanhúss er úr galvanhúðuðu stáli.
Séreignageymsla í kjallara fylgir öllum íbúðum. Sér stæði í bílageymslu fylgir öllum íbúðum.
Þess ber að geta að allar íbúðir eru loftræstar með sjálfstæðu loftskiptikerfi sem blæs fersku lofti inn í íverurými og dregur loft út af baðherbergjum, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu sem flytur varma úr út soginu yfir í ferska innblástursloftið, sem með því, minnkar upphitunarkostnað íbúða. Ferska innblástursloftið er síað til að hreinsa óhreinindi úr því áður en því er blásið í inn í íverurýmin. Einnig er hitaelement í kerfinu, hægt er að stýra hraða þeirra sem gerir notanda kleift að stilla hitastig á innblásturslofti og stilla loftmagn sem blásið er inn í íbúðina.