Aðalsteinn Jón Bergdal og Trausti fasteignasala kynna sjarmerandi 3ja hæða einbýlishús með fallegum einkagarði á frábærum stað í miðbæ Reykjavíkur að Laufásvegi 39. Húsinu hefur verið vel við haldið og endurnýjað verulega á síðustu árum með virðingu fyrir uppruna þess.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit. Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 130,6 fm.Nánari lýsing:
1. HæðStórt
svefnherbergi veggir og loft klætt með gipsplötum, kalkmálað og með stórum fataskáp. Gluggar á tvo vegu. Parket á gólfi
Baðherbergi veggir og loft klætt votrýmis-gipsplötum. Innangengt úr svefnherberginu, góðinnrétting með marmara borðplötu og -vaski, upphengdu salerni, walk-in sturtu, flísalagt gólf og að hluta til á veggjum sem eru hvít kalkaðir þar sem ekki eru flísar. Gluggar á þrjár hliðar.
Þvottahús og
geymsla, rúmgott rými með sér inngangi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara, snúrur. Málað steingólf.
2. HæðAðalinngangur í húsið, gengið upp tröppur úr garði. Fataskápur við inngang.
Eldhús er samliggjandi stofurýmum, góð eldhúsinnrétting, marmara borðplata, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, gaseldavél með rafmagnsofni. Parket á gólfi.
Borðstofa/stofa samtengt eldhúsi, bjartar með birtu frá gluggum sem snúa í þrjár áttir. Parket á gólfi
Svefnherbergi er nú notað sem sjónvarpsstofa og bókaherbergi. Gluggar á tvo vegu. Parket á gólfi.
Af þessari hæð úr alrýminu er
stigi niður á
1. hæð og upp á
3. hæð.
3. Hæð undir súð. Gólfflötur töluvert stærri en gefið er upp í fasteiganyfirliti.
Stofa sem er notuð sem vinnuherbergi í dag. Tveir góðir gluggar og góðir skapar undir súð. Parket á gólfi
Svefnherbergi, tveir þakgluggar. Parket á gólfi.
Snyrting með vaski og salerni, góðum glugga. Parket á gólfi.
Garður:Afgirtur, skjólgóður og sólríkur með nýlegri hellulögn, fjölskrúðugum gróðri, grasflöt og snúrustaurum. Góður pallur við inngang.Helstu framkvæmdir síðustu ár:
Árið 2014: Eldhús algjörlega endurnýjað. Loft og veggir í svefnherbergi á 1. hæð klæddir gipsplötum og málað með hvítri kalkmálningu og smíðaður veggfastur fataskápur. Baðherbergi á 1. hæð algjörlega endurnýjað, það var klætt vatnsþolnum gipsplötum, málað með hvítri kalkmálningu, allar innréttingar sérsmíðaðar, gólf flísalagt og að hluta veggir, sturtuklefi með nýjum tækjum og sturtugleri.
Árið 2016: Hellur lagðar í norð-austur horni garðsins. Trjástubbar og rætur fjarlægt. Snúrustaurar færðir úr miðjum garði afturfyrir hús.
Árið 2019: Smíðaður nýr pallur með handriði við útidyr. Skipt um allar gluggakrækjur og stormjárn.
Árið 2020: Ný og endurnýjuð hellulögn í vesturhluta garðs, ásamt skjólvegg fyrir sorp. Tvö útiljós sett í hellulögn og ný úti veggljós.
Árið 2021: Allt húsið málað að utan, veggir, þak og gluggar. Þakrennur og niðurfallsrör endurnýjuð. Áfellur settar á húsmæna á þaki.
Árið 2025: Snjógildrur settar á þak.
Fallegt og sjarmerandi einbýli á þessum vinsæla stað í miðborginni. Stutt í alla þjónustu og Hljómskálagarðurinn og allt það skemmtilega sem miðbærinn hefur upp á að bjóða í göngufæri. Stutt í leik-, grunn- og menntaskóla.
Nánari upplýsingar um eignina veita Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is og Kristján Baldursson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is