Stórkostlegt tækifæri til að eignast jörð að sjó með nýlegum húsakosti og töluverðum hlunnindum!
Hlunnindi á jörðinni eru : Heitt vatn, gott berjaland, fjallagrös, gæsaveiði og stutt er í rjúpu. Mikið af sel á ströndinni fram af bænum.
A fantastic opportunity to acquire a farm close to the ocean with recent housing and considerable benefits!
Benefits on the ground are: hot water, an indicator of eider nesting, good berry land, Iceland moss, geese hunting and a short distance from trees. Lots of seals on the beach off the farm.
Laugaból er staðsett í Mosdal við Arnarfjörð í Ísafjarðarbæ. Laugaból, er skráð 421,7 ha að stærð. Og Hokinsdalur, er skráð 1.373,3 ha að stærð.
Laugaból is located in Mosdalur by Arnarfjörður in Ísafjarðarbær. Laugaból is registered as 421.7 ha in size. And Hokinsdalur is registered as 1,373.3 ha in size.
Ekið er inn afleggjarann eins og verið sé að heimsækja Dynjanda en Dynjandi er mestur fossa á Vestfjörðum. Fossinn og umhverfi hans var friðlýst sem náttúruvætti árið 1981, enda um einstaka náttúruperlu að ræða. Ekið er niður í fjöru og þaðan er ekið út með fyrðinum. Laugaból er því vel falin perla sem ekki sést nema ekið sé að jörðinni.
You drive in from the side road as if visiting Dynjandi, but Dynjandi is the largest waterfall in the Westfjords. The waterfall and its surroundings were protected as a natural monument in 1981, as it is indeed an exceptional natural gem. You drive down to the shore and from there drive along the fjord. Laugaból is therefore a well-hidden gem that can only be seen if you drive to the farm.
Allur húsakostur er til fyrirmyndar á jörðinni, steyptar stéttar eru umhverfis hesthúsið og stórt steypt plan er fyrir framan íbúðarhúsið. Allar byggingar eru reystar eftir 2000 m.a. íbúðarhús / einbýli 270 fm, hesthús, hlaða og reiðskemma 1200 fm.
Húsakostur er því til algjörar fyrirmyndar og til ýmissa nota. Jarðhiti hitar upp steypta sundlaug sem er við hlið íbúðarhússins. Borað hefur verið eftir heitu vatni og er hitastig í holunni u.þ.b 50 gráður þar sem vatnið kemur upp. Jörðin gæti nýst vel fyrir fiskeldi á landi. Frábært gæsaveiðisvæði og stutt í rjúpu. Mikill selur er í fjörunni við bæinn.
All housing is exemplary on the ground, concrete sidewalks are surrounding the stables and a large concrete plan is in front of the dwelling.
All buildings are built after 2000 including dwellings/villas 270 sqm, stables, barn and riding warehouse 1200 sqm.
Buildings are exemplary and for various uses. Geothermal, concrete swimming pool. Hot water has been drilled and the temperature in the well is approximately 50 degrees. The land could be useful for aquaculture on land. Great goose oak area and short of grouse.
Great goose oak area and short of grouse. There is a great seal on the shore near the farm.
Sjón er sögu ríkari
Vision is richer
*Um 2000 var jörðin byggð upp frá grunni, því eru öll hús sem standa á jörðinni byggð eftir aldamótin að frátöldu einu húsi niður við sjó. Jörðin var byggð upp sem hestaræktunarjörð og mest voru 150 hestar í ræktun. Byggður var stór skeiðvöllur, með 350 metra braut og 400 metra hring.
Undanfarið hefur jörðin verið nýtt til ferðaþjónustu og hefur það gengið vel. Ein af sérstöðu jarðarinnar er jarðhitinn sem jörðin er kennd við. Vegna jarðhitans er steypt sundlaug á Laugabóli, 7,5 x 20 m og gróðurhús.
* Íbúðarhúsið og hesthúsið eru m.a hituð með þessum jarðhita. Borað var eftir heitu vatni og er vatnið um 50 gráður þar sem það kemur upp úr jörðinni. Góð skilyrði eru til að koma upp æðavarpi á jörðinni.
* Búið er að breyta gamla æðarvarps húsinu í glæsilegan saunaklefa með gólfsíðum gluggum með útsýni út á hafið!
* Ljósleiðari er tengdur við bæinn. Húsakostur er allur byggður eftir 2000 sem er heldur einstakt á íslandi.
*Around 2000 the farm was built from scratch, as a breeding ground and a maximum of 150 horses were breeded. A large racecourse was built, with a 350m course and a 400m circle.
Recently, the land has been used for tourism and has been doing well. One of the uniqueness of the Earth is the geothermal energy by which the Earth is named. Due to the geothermal heat there is a concrete swimming pool at Laugaból, 7,5 x 20 m and a greenhouse.
* The apartment building and stables are heated by this geothermal heat. Hot water was drilled and the water is about 50 degrees where it emerges from the ground. There are good conditions for establishing an birdnestfarming on the ground.
* The old duck house has been converted into a magnificent sauna cabin with floor-to-ceiling windows overlooking the sea!
* Fiber optic cable is connected to the farm. The buildings are all built after 2000, which is rather unique in Iceland.
Aðalhúsið er einbýlishús úr timbri á þremur hæðum.
Jarðhæð innréttuð sem starfsmannaíbúð, þó er innangent á milli hæða og því hægt að ganga um allt húsið um stiga sem liggur frá fyrstu hæð og upp á þá þriðju.
Þar er sér inngnagur á jarðhæðina þar sem er eins og áður sagði sér íbúð, hún er þó bara lokuð af með hurð. Hátt er til lofts og stórir gluggar eru á jarðhæðinni ásamt hita í forstofu og á baðherbergi.
Eldhús, baðherbergi/þvotthúas, geymsla, forstofa, stofa og tvö svefnherbergi. Sérinngangur.
Aðalinngangur hússins er um miðhæð hússins.
Gengið er upp reisulegan stiga, þaðan er svo gengið inn í forstofu.
Hæð: forstofa, wc, stórt eldhús, þvottahús og 3 stórar stofur.
3 hæð: Stórt baðherbergi og 5 svefnherbergi.
Wooden villas on three floors.
The ground floor is furnished as a staff apartment, although there is an interior between floors, so it is possible to walk around the whole house via a staircase that leads from the first floor to the third.
There is a entrance to the ground floor where, as previously mentioned, there is an apartment, but it is only closed off by a door. The ceiling is high and there are large windows on the ground floor along with heating in hall & bathroom floors.
Kitchen, bathroom/laundry room, storage, hall, living room and two bedrooms. Private entrance.
The main entrance of the house is about the middle floor of the house.
You climb a staircase and then enter the hall.
Height: hall, wc, large kitchen, laundry room and 3 large living rooms.
3rd floor: Large bathroom and 5 bedrooms.
* Hesthús: fyrir c.a 40 hross og c.a 200 m2 hlaða/vélaskemma með góðri hnakkageymslu.
Loft er yfir hesthúsi, Þar hafa eigendur tekið til hendinni og komið upp glæsilegu rými sem ætlað er fyrir rithöfunda og listamenn, búið er að útbúa nokkur herbergi, stórt sameiginlegt rými og wc, hér er búið að endurnýja alla ofna og gera upp baðherbergi.
* Reiðhöll: Vandað 15 x 30 metra límtréshús klætt með yleiningum frá Límtré Vírneti.
* Lítið fjárhús frá Hýsi fyrir 24 kindur. Lagfæra þyrfti þak ef not eru fyrirhuguð á húsinu.
Lítið hús stendur niður við sjó en þetta var eina húsið sem Eigandinn leifði að standa þegar uppbygging Laugaból hófst.
Húsið er með salerni, gashellum og rúmi.
Stables: for c.a 40 horses and c.a 200 m2 barn/machine warehouse with good saddle storage.
There is a ceiling over the stables, several rooms, a large common space and wc, this is an unfinished space. The pipes freezed, so all the pipes were replaced, but the damaged furnaces had yet to be replaced.
Riding Hall: An elaborate 15 x 30 meter glued wooden house covered with warming elements from Glued Wire Mesh.
A small sheephouse from Hýsi for 24 sheep. The roof would need to be repaired if use is planned for the house.
A small house stands down by the sea, but this was the only house the owner allowed to stand when construction of Laugaból began.
The house has a toilet, gas slabs and a bed.
Laugaból er afskekkt og er því engin umferð um hlaðið en þó stutt í malbik alla leið til Reykjavíkur og umfangs miklar framkvæmdir til vegabóta standa yfir. Heimtröðin hefst við Dynjandi og telur 10 km, um einstaklega vestfirskan malarveg sem liggur í fjallshlíð Urðarfells. Nýverið hafa verið boruð Dýrarfjarðargöng, sem leysa af hólmi veginn um Hrafnseyrarheiði og tengja Laugaból við alheiminn, allt árið um kring. Leiðin til Ísafjarðar telur 69 km.
Laugaból is remote and therefore there is no traffic on the ramp, although asphalt is short all the way to Reykjavík and extensive road improvement projects are ongoing. The queue starts at Dynjandi and counts 10 km, around a unique western dirt road that runs on the mountainside of Urðarfell. Recently a Dýrarfjarðargöng tunnel has been drilled, replacing the road around Hrafnseyrarheiði and connecting Laugaból to the universe, all year round. The route to Ísafjörður is 69 km.
Hokinsdalur fnr. 212-5090 er einnig í eigu sama félags og Laugaból en Hokinsdalur fylgir með í kaupum á eigninni Laugabóli.
Hokinsdalur no. 212-5090 is also owned by the same company as Laugaból, but Hokinsdalur is included in the purchase of the property Laugaból.
Að sögn seljanda þá afhendist húsakostur Laugabóls í því ástandi sem að það var í við skoðun.
- Allt innbú að frátöldum persónulegum munum fylgir með við sölu á jörðinni, þ.á m eru handklæði og sængurföt sem seljendur notuðu til að reka gistingu á sumrin.
According to the seller, Laugaból's housing is delivered in the condition it was in at the time of inspection.
- All contents, except personal effects, are included when selling the land, including towels and bedding that the sellers used to run accommodation during the summer.