Einbýlishúsalóð fyrir hús á tveimur hæðum.
Garðatorg eignamiðlun, s: 5450800, kynnir til sölu lóðir í Hnoðraholtinu í Garðabæ. Lóðirnar eru í suðurhlíð holtsins með útsýni yfir GKG golfvöllinn og í næsta nágrenni við Heiðmörkina. Hverfið er í góðri tengingu við nærliggjandi þjónustu og fyrirhugaður leik- og grunnskóli verður staðsettur miðsvæðis í hverfinu.
Selholt 8 er einbýlishúsalóð fyrir hús á tveimur hæðum, stærð lóðar er 555fm og hámark byggingarmagns 360fm.
Óskað er eftir tilboðum í byggingarrétt lóðanna og er lágmarksverð kr. 33.000.000.- auk gatnagerðagjalda.
TILBOÐ Í BYGGINGARRÉTT LÓÐANNA ÞURFA AÐ BERAST GARÐATORGI EIGNAMIÐLUN FYRIR KL 12:00 FÖSTUDAGINN 30. OKTÓBER 2026 OG GILDA TIL KL 12:00 FÖSTUDAGINN 6. NÓVEMBER 2026. Tilboð verða opnuð og tekin fyrir á fundi bæjarráðs Garðabæjar kl.8:00 þriðjudaginn 3. nóvember 2026.
Allar nánari upplýsingar veita starfsmenn Garðatorgs:
Haraldur Björnsson, s: 787 8727, haraldur@gardatorg.is
Steinar S. Jónsson, s: 898 5254, steinar@gardatorg.is
Sigurður Tyrfingsson, s: 898 3708, sigurdur@gardatorg.is
Ragnar G. Þórðarson, s: 899 5901, ragnar@gardatorg.is
Unnur Ýr Jónsdóttir, s: 8660507, unnur@gardatorg.is
Gatnagerðargjöld og byggingarréttargjald:Gatnagerðargjöld af lóðum eru samkvæmt gjaldskrá Garðabæjar. Tilboðsgjafar gera tilboð í byggingarrétt lóðanna. Byggingarréttargjald innifelur ekki heimæðargjöld veitustofnana, byggingarleyfisgjald, skipulagsgjald, úttektargjöld og önnur slík gjöld. Lóðarhafi greiðir umrædd gjöld í samræmi við gjaldskrár sem gilda hverju sinni.
Lágmarksgatnagerðargjöld af einbýlishúsum par- og raðhúsum
Einbýlishús 240 fm kr. 11.683.402
Par- og raðhús 190 fm kr. 7.367.188
Viðbótargatnagerðargjöld eru greidd af umframfermetrum.
Ofangreindar fjárhæðir breytast í samræmi við byggingarvístölu m.v. grunnvísitölu í september 2026, 129,6 stig.