Miklaborg kynnir: Vandað rúmega 316 fm. fm einbýlishús á tveimur hæðum með 2ja herb. aukaíbúð með sérinngangi á eftirsóttum og rólegum stað í Skerjafirði. Innangengt í bílskúr með geymslurými. Mikil lofthæð er í hluta hússins. Húsið er mikið endurnýjað. Ný eldhúsinnrétting, ný eldhústæki, öll gólf flotuð, nýtt parket, nýjar innihurðir, stærstur hluti raflagna endurnýjaður og veggir sprautusparslaðir og málaðir. Húsið skiptist m.a. í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, 6 svefnherbergi, 3 baðherbergi og þvottahús. Óskráð rými í kjallara er mjög stórt og býður upp á margvíslega notkunarmöguleika. Frábær staðsetning á rólegum stað í Skerjafirði. Hiti er í bílaplani og stétt fyrir framan húsið.
Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og lögg. fast.: vidar@miklaborg.is, s. 694-1401
Nánari lýsing: Rúmgóð forstofa með fatahengi og flísum á gólfi. Gestasnyrting við forstofu, flísar á gólfi. Hol er parketlagt. Arinstofa/fjölskylduherbergi (svefnherbergi 1) er með parketi. Auðvelt að opna í hol. Útgengt er út í garð úr herberginu. Svefnherbergi 2 á efri hæð hússins er rúmgott, parketlagt. Stofa/borðstofa eru samliggjandi, rúmgóðar og bjartar parketlagðar með góðri lofthæð. Eldhús er endurnýjað með fallegri innréttingu. Öll tæki eru frá Siemens nýleg , innbyggð uppþvottavél, ísskápur og vínkælir. Parket á gólfi. Eldhús er opið við borðstofu. Búr er inn af eldhúsi. Stigi liggur niður úr holi niður á neðri hæð hússins. Einnig er sérinngangur á neðri hæðina.
Neðri hæð: Á hæðinni er forstofa, fjögur rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi (annað með sturtu en hitt meðbaðkari), sjónvarpshol, skrifstofurými og þvottahús. Forstofa með fatahengi og flísum á gólfi.
Rúmgott hol, er nýtt í dag sem gott sjónvarpsrými.Hjónaherbergi (svefnherbergi 3) er rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Útgengt út í garð úr herberginu. Baðherbergi inn af hjónaherbergi er með sturtuklefa, glugga, handklæðaofni og flísalagt í hólf og gólf. Svefnherbergi 4 rúmgott með parketi á gólfi. Svefnherbergi 5 rúmgott með parketi á gólfi. Svefnherbergi 6 rúmgott með parketi á gólfi. Útgengt er út í garð úr herberginu.Baðherbergi með baðkari, nýju blöndunartæki og handklæðaofni. Upprunaleg innrétting, flísalagt gólf. Þvottahús er á jarðhæð.
Auka 2ja herbergja íbúð á aðalhæð hússins er í útleigu. Inngangur í íbúðina er við hlið aðalinngangs í húsið. Íbúðin er mikið endurnýjuð; nýtt parket, ný loftaklæðning, nýtt rafmagn, nýtt eldhús og tæki, nýjar innihurðir og allt ný málað.Forstofa er parketlögð. Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi og stórum gluggum sem snúa í vestur. Eldhús er opið við stofuna, ný eldhúsinnrétting og tæki og parket á gólfi. Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott með sturtu, tengi fyrir þvottavél, flísalagt í hólf og gólf. Bílskúr er 36,3f m., innangengt er í bílskúrinn úr húsinu og hurð liggur út í garð.
Bílaplan og stétt fyrir framan húsið er með hitalögn.Húsið er steypt og með epoxy klæðningu á steypu.Járn á þaki var endurnýjað fyrir u.þ.b. 16 árum síðan.
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 27/07/2021 | 139.450.000 kr. | 140.000.000 kr. | 316.3 m2 | 442.617 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
108 | 272,5 | 199,9 | ||
108 | 150,9 | 172,9 | ||
108 | 170 | 228 | ||
221 | 322 | 199 | ||
220 | 225,5 | 149,9 | ||
220 | 202,1 | 175 |