Til leigu samtals 1.466,8 m² lager- og skrifstofuhúsnæði við Klettháls. Laust frá 1. júlí 2026
Nánari lýsing:
Húsnæðið er stálgrindarhús sem skiptist upp í lagerrými með 7 - 8 m. lofthæð með samtals 3 háum innkeyrsluhurðum, starfsmannaaðstöðu, afgreiðslufronti, eitt tæknirými, inntaksrými og eina snyrtingu á jarðhæð í norðurhluta hússins. Sameiginlegur inngangur/ anddyri er einnig á jarðhæð. Á 2. hæð er opið skrifstofurými og á 3. hæð, en þar er einnig stórt fundarherbergi, tvær lokaðar skrifstofur og stór kaffistofa/eldhús með útgengi á vestur svalir. Skrifstofuhluti húsnæðisins er um 285 m². Hæð á innkeyrsluhurðum í lagerhluta sem eru þrjár talsins er um 4,3 m. Niðurföll eru í glólfum. Gott athafnasvæði er á lóð húsnæðisins. Virðisaukaskattur leggst við leigufjárhæðina.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali í síma 897 7086 tölvupóstur hmk@jofur.is