101 Reykjavík Fasteignasala kynnir: Fallegt og vel byggt parhús í nýlegu hverfi á Sauðárkróki. Staðbyggt timburhús, klætt með klæðningu frá Áltak og Citrusvið.
Lýsing eignar:
Eignin samanstendur af forstofu, stofu, eldhúsi, þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, fataherbergi, þvottahúsi og bílskúr.
Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum skápum og þaðan inn í alrými á vinstri hönd.
Eldhús er einkar rúmgott með sérsmíðaðri hvítri innréttingu frá Trésmiðjunni Borg, sem samanstendur af efri og neðri skápum og skúffum. Helluborð er í veggfastri eyju, 2 bakaraofnar eru í innréttingunni, uppþvottavél og innbyggður ísskápur. Heimilistækin eru vönduð Siemens tæki.
Stofa/alrými er rúmgott, bjart og með fallegum gluggum ásamt útgengi út í garð.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, innréttng við vask, spegill frá Íspan með baklýsingu, góð inngöngu sturta sem er stúkuð af með gleri, einnig frá Íspan. Axor blöndunartæki eru á baðherbergi.
Svefnherbergin eru þrjú á hægri hönd frá forstofu.
Tvö góð barnaherbergi og innst á gangi er svo masterherbergi, inn af því er fataherbergi með góðum skápum og sér baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með inngöngu sturtu með gleri frá Íspan, spegill fyrir ofan innréttingu undir vaski. Axor blöndunartæki eru á baðherbergi.
Af baðherbergi er útgengi út í bakgarð og úr fataherbergi er einnig hægt að fara inn í þvottahús.
Þvottahús er fyrir framan inngang í bílskúr, vélar í vinnuhæð og gott skápapláss.
Bílskúr er rúmgóður, flísalagður, góðir skápar og með opnu millilofti sem nýtist sem geymsla.
Snjóbræðslukerfi í steyptu bílaplani og stétt upp að húsi, að öðru leyti er búið að jarðvegsskipta lóð við húsið.
Innbyggð lýsing er í öllu húsinu að undanskildum bílskúr.
Flísar frá Vídd á votrýmum.
Parket (Pergo) og innihurðir frá Agli Ólafssyni.
Screen gardínur frá Álnabæ.
Sérsmíðaðar innréttingar og fataskápar frá Trésmiðjunni Borg að undanskilinni innréttingu í bílskúr.
Hljóðvistardúkur frá Enso í öllum loftum að undanskildum bílskúr.
Gólfhiti er í öllu húsinu.
Varmaskiptir á neysluvatni.
Steypt ruslatunnuskýli.
Gert er ráð fyrir að hafa heitan pott hvort sem er fyrir framan eða aftan við húsið og einnig eru komin ídráttarrör fyrir hleðslustöð.
Húsið byggt 2020 – 2021
Einn eigandi frá upphafi
Allar upplýsingar veita: Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is og Björg Kristín Sigþórsdóttir bjorgkristin@101.is
Bókið skoðun á kristin@101.is eða í síma 820-8101.
Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 89.900,- með vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv.