Fasteignasalan TORG kynnir: Falleg 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi.
Um er að ræða 65,7 fm íbúð á jarðhæð.
Fallegt og vel viðhaldið hús við hlið Klambratúns.
Upplýsingar veitir Jóhanna Gígja, löggiltur fasteignasali, í síma 662 1166 eða johannagigja@fstorg.is
Forstofa með flísum, hiti í gólfi.
Hol með parketi á gólfi, fataskápur.
Eldhús með innréttingu frá Birninum, spanhelluborð, t.f. uppþvottavél.
Stofa og borðstofa í sama rými, harðparket á gólfi, stórir gluggar og stofa því björt.
Hjónaherbergi með fataskápum.
Barnaherbergi inn af hjónaherbergi.
Baðherbergi með rúmgóðri sturtu í gólfhæð, hvít innrétting, handklæðaofn og hiti í gólfi.
Þvottahús er sameiginlegt, innangengt úr íbúð.
Tvær geymslur, önnur í sameign og hin köld útigeymsla.
Garður er sameiginlegur, fallegur og í rækt.
Falleg og vel staðsett íbúð í göngufæri við Klambratún, miðbæinn, skóla, verslun og þjónustu.
Upplýsingar veitir Jóhanna Gígja, löggiltur fasteignasali, í síma 6621166 eða johannagigja@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi nýbyggingar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.