ALDIR Fasteignir og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / sveinn@aldirfasteignir.is kynna:
Um er að ræða nýja 147.4 fm fimm herbergja íbúð á jarðhæð með verönd á þessum vinsæla stað í vesturbænum.
Íbúðin er hugsuð fyrir íbúa/eigendur sem að eru 60 ára og eldri.
Mjög mikil og góð sameign er í húsinu og sterkt húsfélag.
LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 143.1 fm merkt 00-05 og geymsla er 4.3 fm merkt 00-08, samtals er íbúð því 147.4 m2 að stærð.
Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@aldirfasteignir.is
Eignin skiptist í:Forstofu/anddyri, tvær stofur, sjónvarpsherbergi, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, gestabaðherbergi, þvottaherbergi og sérgeymslu.
Nánari lýsing á eign:Forstofa/anddyri með innbyggðum fataskápum.
Á vinstir hönd úr forstofu er inngengt í
herbergjaálmu en þar er alrými sem er teiknað sem
sjónvarpsherbergi en auðvelt væri að breyta í svefnherbergi.
Rúmgott
hjónaherbergi með fataherbergi innaf með vönduðum innréttingum.
Baðherbergi sem að er með flísum á gólfum og veggjum, Walk-in sturtuklefi með glerskilrúmi, vegghengt salerni, ágætis innrétting undir vask með hirslum, handklæðaofn.
Þvottaherbergi með flísum á gólfum, vinnuborð með skolvask.
Á hægri hönd úr forstofu er komið inní
borðstofu og eldhús sem að er með fallegri eldhúsinnréttingu með efri og neðri skápum, eldunareyja með helluborði er í miðju rými,
innbyggður ísskápur og uppþvottavél í innréttingu.
Í framhaldi af
borðstofu er rúmgóð stofa.Í
miðjurými þegar komið er úr forstofu er eitt
svefnherbergi með fataskápum.
Gestasnyrting með ágætis innréttingu í kringum vask, handklæðaofn og vegghengt salerni.
Sérgeymsla íbúðar er framan við inngang í íbúð.
Gólfefni: Harðparket / vinyl parket á gólfum en votrými eru flísalögð.
Upplýsingar um endurbætur:
-Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar og fataskápar í íbúð frá BRÚNÁS.
-Innihurðar eru frá PARKA.
-Vönduð blöndunartæki á baðherbergjum og í eldhúsi.
-Eldhústæki eru frá Siemens.
-Allt rafmagnsefni, lagnaefni og neysluvatnslagnir eru nýjar í íbúð.-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@aldirfasteignr.isAldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.