Valhöll kynnir glæsilega 4ra herbergja endaíbúð með sjávarútsýni, stórri verönd, yfirbyggðum svölum, tveimur baðherbergjum og stæði í bílageymslu í Sjálandshverfinu í Garðabæ. Sjón er sögunni ríkari.
Sjáðu myndband af eigninni.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 150,1 fm. og þar af er geymsla í kjallara 16,1 fm. Til viðbótar er um það bil 46,5 fm timburverönd, 7,8 fm yfirbyggðar svalir og stæði í bílageymslu.Íbúðin er staðsett á 1. hæð (jarðhæð) í 3. hæða lyftuhúsnæði ásamt kjallara. Byggingarár hússins er skráð 2008 en þá var grunnurinn steyptur en húsið var svo endanlega byggt árið 2014. BYGG ehf. byggði húsið.
Nánari upplýsingar veitir:Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is
Lýsing:Gengið er inn í andyri með fataskáp. Gangur liggur svo til hægri þar sem tvö svefnherbergi eru og baðherbergi, til vinstri við forstofuna er þvottahúið en beint inn af er gengið inn og í sjónvarpshol til vinstri og svo opnar stofurnar inn af því. Lítill, hálfur veggur aðskilur sjónvarpsholið og stofurnar. Inn af sjónvarpsholinu er hjónaherbergið sem er með baðherbergi inn af. Eldhúsið er opið í stofurnar en tvö þrep liggja niður í eldhúsið úr stofunum. Gengið er út á yfirbyggðar svalir með fallegu útsýni út á flóann. Úr eldhúsinu er gengið út á stóra um 46,5 fm. timburverönd. Góð 16,1 fm. geymsla með glugga fylgir íbúðinni í kjallara sem og sér bílastæði í lokuðu bílastæðahúsinu. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Nánari lýsing:Anddyri: Með fataskápum og flísum á gólfi.
Hol / sjónvarpshol: Með flísum á gólfi.
Stofa / borðstofa: björt og rúmgóð stofa ásamt borðstofu með flísum á gólfum, fallegt útsýni út á sjó. Útgangur er út á svalir með fallegu sjávarútsýni.
Eldhús: Falleg innrétting, gott skápa- og borðpláss, eyja með Span helluborði og gufugleypir yfir, ofn í vinnuhæð, góður borðkrókur og flísar á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, góð sturta, handklæðaofn, upphengt salerni, innrétting við handlaug og efri skápur.
Hjónaherbergi og baðherbergi: Mjög rúmgott hjónaherbergi með flísum á gólfum, mjög gott skápapláss og sér rúmgott baðherbergi inn af. Þar er baðkar með sturtutengi, upphengt salerni, handklæðaofn og góð innrétting, flísar á gólfi og veggjum.
Svefnherbergin: Tvö rúmgóð svefnherbergi með flísum á gólfum og góðu skápaplássi.
Þvottahús: Gott skápapláss og hillur, flísar á gólfi og skolvaskur í innréttingu.
Svalir: Breiðar yfirbyggðar útsýnissvalir, skráðar skv. teikningu 7,8 fm.
Verönd: Glæsileg útiverönd, skráð skv. teikningu 46,5 fm. með skjólvegg, útgangur úr eldhúsinu.
Geymsla: Rúmgóð 16,1 fm. geymsla fylgir í kjallara hússins.
Stæði í bílageymslu: Sér stæði merkt B06 fylgir í lokaðri bílageymslu í kjallara hússins.
Sameign: Snyrtileg sameign og stigagangur, sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
- Innréttingar frá sérsmíðaðar frá Brúnás. Gólfefni er frá Parki. Heimilistæki eru AEG frá Bræðrunum Ormson.
- Búið er að leggja rafleiðslur fyrir rafbíla að bílastæði í bílageymslu.
- Stutt í Sjálandsskóla og leikskólann Sjáland.
- Hlutfallstala eignarinnar í heildarhúsinu Nýhöfn 2-6 er skráð 5,94%
- Húsgjöld íbúðarinnar eru núna 36.671 kr. á mánuði.
- Um er að ræða einstaka eign í álklæddu lyftuhúsnæði, byggt af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars. á frábærum stað við sjávarkambinn í Garðabæ.
Nánari upplýsingar veitir:Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.