Fasteignaleitin
Skráð 12. nóv. 2026

Lyngalda 2B

RaðhúsSuðurland/Hella-850
118.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
73.600.000 kr.
Fermetraverð
620.051 kr./m2
Fasteignamat
6.010.000 kr.
Garður
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2544512
Landnúmer
235509
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Númer íbúðar
03
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028

RAÐHÚS Í BYGGINGU VIÐ LYNGÖLDU 1B Á HELLU.
Um er að ræða miðjuíbúð í fjögurra íbúða raðhúsi í byggingu.  Ásett verð miðast við fullbúna íbúð miðað við neðangreinda skilalýsingu.  Einnig er mögulegt að fá íbúðirnar afhentar tilbúnar undir tréverk að öðru leyti en því að eftir er að setja upp milliveggi og sparsla.  Íbúðirnar telja: Anddyri, alrými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.

Skilalýsing 

Lóð og Teikningar:
Lóðin skilast grófjöfnuð en gert er ráð fyrir grasþökum. Gert er ráð fyrir að bílastæði og göngustígur að húsi verði lögð hellulögn og möl. Allar teikningar liggja inn á vef sveitafélagsins.
 
Útveggir:
Útveggir eru forsteyptar samlokueiningar úr járnbentri steinsteypu með einangrun milli á milli burðalags og ytra byrði. Ytra byrði er með sléttri stáláferð.
 
Veggir á milli íbúða:
Veggir eru forsteyptir úr járnbentri steinsteypu og eru 150 mm að þykkt..
 
Þak:
Þakplatan er staðsteypt ofan á forsteyptar filegran loftaplötur, yfir kemur rakavarnarlag og EPS einangrun sniðskorin með 2.5% halla að niðurföllum, meðalþykkt 220mm. Þakið er varið með PVC viðurkenndum þakdúk, B(roof) (t2). Einangrun og PVC dúk er haldið niðri með fargi af möl (t=80-100mm)með kornastærð 60-80mm
 
Gluggar og útihurðir frá Skanva:
Gluggar: Timbur/álgluggar, hvítir RAL 9010, með tvöföldu orkusparandi einangrunargleri, vönduðum þéttingum og opnunarbúnaði.
Útihurðir: Timbur/álútihurðir, hvítar RAL 9010, með einangrunargleri, einangruðum fyllingum, ASSA-læsingarbúnaði og stillanlegum lömum.
 
Lagnir:
Skolp og regnvatnslagnir eru tengdar fráveitukerfi í götu. Húsið er hitað upp með hefðbundinni ofnalögn. Inntök eru staðsett í vaskahúsi.
 
Rafkerfi:
Um er að ræða hefðbundið raflagnakerfi þ.e. huldar lagnir lagðar í steyptum veggjum/þaki eru lagnir í rörum í veggjum/loftum. Rofar og tenglar verða innfelldir 10 -16A. Ljósum verður almennt staðstýrt í herbergjum. Gert er ráð fyrir rafhleðslu við hús.
 
Loftræsikerfi:
Loftræsing sé samkv. gr. 10.2.5 í byggingareglugerð. Loftræsing verði almennt um opnaleg fög. Gluggalaus rými verða loftræst með vélrænni loftræsingu útblástur fer um túðu í gegn um þak. Útsog frá eldhúsi sé að lámarki 30l/c. Útsog úr baðherbergjum sé að lámarki 15l/c og útsog úr þvottahúsi sé amk. 20l/c.
 
Millivegir:
Léttir innveggir eru blikkgrindarveggir, einangraðir með steinull, klæðning í a.m.k. flokki 2, veggir uppfylli kröfur samkvæmt hljóðvistarflokki C í byggingareglugerð.
 
Opinber gjöld:
Gatnagerðargjöld eru að fullu greidd, þ.a.s. Gatnagerð, byggingaleyfisgjald og holræsigjald. Inntaksgjöld rafmagns, hita og vatnsveitu eru greidd. Skipulagsgjald kemur til greiðslu síðar og er ógreitt við afhendingu, (kaupandi greiðir)
 
Nánari lýsing:
Glæsilegar fjögurra herbergja raðhúsíbúðir. Íbúðirnar skiptist í forstofu, opið alrými sem samanstendur af eldhúsi og stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, vaskahús og geymsla. Stærð á endaíbúðum er 121,3 fm og á miðjuíbúðum 118,7 fm
Íbúðirnar eru parketlagðar með harðparketi. Baðherbergi eru með flísum á gólfi og veggjum. Baðherbergi eru með innréttingum, vegghengdum salernum og ”walk in” sturtum.
Eldhúsinnréttingar, baðinnréttingar og fataskápar eru frá Ikea. Eldhústæki eru frá Ikea, þ.e. ofn og helluborð (span). Í eldhúsum eru blöndunartæki og eldhúsvaskar frá Ikea.
Allir veggir eru hvítt málaðir. Anddyri, baðherbergi og vaskahús eru flísalögð en önnur rými eru með parketi. Fataskápar eru komnir í herbergi. Til áréttingar:
Hreinsa þarf reglulega úr niðurföllum í sturtum. Gólfrist er tekinn upp og niðurfallshólf tekið upp og hreinsað. Í nýjum íbúðum er byggingarraki. Því er nauðsynlegt að loftræsta meira en ella fyrsta árið eftir að flutt er í nýja íbúð. Nýjustu þéttilistar á gluggum og hurðum geta gert íbúðina mjög þétta. Myndist þéttiraki innan á gler (vegna kulda ofl.) er mjög mikilvægt að lofta út og þurrka það vatn sem sest í glugganum, svo að það valdi ekki skemmdum á honum. Smyrja verður útihurða-, glugga- og svalahurðaskraá a.m.k. einu sinni á ári með þunnri olíu.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528, netfang: gudmundur@fannberg.is
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fannberg fasteignasala ehf.
http://www.fannberg.is/

Myndir (5)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lyngalda 2A
Á einni hæð
Skoða eignina Lyngalda 2A
Lyngalda 2A
850 Hella
121,3 m2
Raðhús
413
620 þ.kr./m2
75.200.000 kr.
Skoða eignina DALAHRAUN 14
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina DALAHRAUN 14
Dalahraun 14
810 Hveragerði
136 m2
Raðhús
312
661 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Drápuhlíð 8
Á einni hæð
Opið hús:16. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Drápuhlíð 8
Drápuhlíð 8
105 Reykjavík
117,9 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
890 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurvangur 2
Opið hús:18. nóv. kl 17:00-18:00
Skoða eignina Suðurvangur 2
Suðurvangur 2
220 Hafnarfjörður
118,5 m2
Fjölbýlishús
413
632 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin