Fallegt og mikið endurnýjað 129,8 fm endaraðhús á góðum og rólegum stað í Húsahverfinu í Reykjavík með fallegan afgirtan garð til suðurs.
Eignin er skráð 129,8 fm á tveimur hæðum, ásamt rislofti en bæði efri hæðin og risloftið eru töluvert undir súð og því er gólfflöturinn stærri. Eldhúsið og parket neðri hæðar var endurnýjað 2023.
Eigendur opnir fyrir makaskipti á minni eign í Grafavogi. 4ra til 5 herbergja íbúðir. Nánari upplýsingar gefur Halldór Freyr, Löggiltur fasteignasali, S:693-2916, halldor@fastgardur.isAlmenn lýsing eignar:
Neðri hæð: Stór og góð geymsla er á vinstri hönd við aðalinngang hússins: Forstofa, rúmgott þvottahús, gestasalerni, eldhús, opin stofa og borðstofa með útgengi út á veglegan pall. Gróinn og afgirtur garður.
Efri hæð: Samanstendur af þremur svefnherbergjum, hjónaherbergi og tveimur barnaherbergjum, ásamt uppgerðu baðherbergi. Stigi frá palli liggur upp í ris íbúðar.Nánari Lýsing:
Anddyri – Fatahengi og ofn. Flísar á gólfi.
Þvottahús – Hvít nýlega endurnýjuð innrétting. Blöndunartæki fyrir ofan innréttingu og dúkur á gólfi,
Snyrting – Falleg flísalögð gestasnyrting með góðum spegli og upphengdu salerni.
Hol: Milli þvottahúss og gestasalernis eru rúmgóðir innbyggðir skápar.
Eldhús – Innrétting og tæki í eldhúsi voru endurnýjað árið 2023, falleg hvít háglasn innrétting með innbyggðum ísskáp, tengi fyrir uppþvottavél, spanhelluborði og fallegur vegghengdur háfur. Góður gluggi og borðkrókur.
Stofa/borðstofa – Stofa og borðastofa eru samliggjandi fyrir miðju rými neðri hæðar með útgengi út á góðan suðurpall sem gefur aukið rými og góða nýtingu. Búið er að leggja rör fyrir heitan pott.
Efri hæð: Gengið er upp rúmgóðan timburstiga með kókosteppi upp á efri hæð. hátt er til lofts og góðir gluggar í stigaganginum þar sem þetta er endaraðhús.
Hjónaherbergi – Hjónaherbergi er mjög rúmgott með fallegum hvítum fataskápum. góður gluggi á gafli og velux gluggi á þaki.
Baðherbergi: Enduruppgert fallegt og mjög rúmgott baðherbergi efri hæðar, flísalagt og með baðkari, sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og skáp með handlaug. Baðherbergi var endurnýjað 2016.
Barnaherbergi 1 – Skápur í herbergi, harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi 2 – Skápur í herbergi, harðparketi á gólfi.
Risherbergi/geymsla - Góður stigi er upp í riosloft. Risið er nýtt sem svefnherbergi í dag en það er mjög rúgott og góðir gluggar á þaki. Geymsla er stúkuð í hluta af rýminu.
Geymsla – Við hliðina á inngangi í hús er geymsla. Risið er skráð 9,8 fm en gólfflötur er mun stærri.
Geymsla: Sérgeymsla er við hlið inngangs á 1.hæð.
Lóð og aðstaða við hús: Garðurinn er einstaklega fallegur en hann var tekinn í gegn að mestu 2021. Lóðin var hækkuð upp og smíðuð mjög snyrtileg girðing í kringum lóðina sem eykur notendagildi garðsins til muna. Búið er að leggja rör fyrir hleðslustöð en eftir er að draga kapal í og lokafragangur að töflu.
Merkt stæði framan við hús. Góð verönd framan við hús þar sem kvöldsól kemur. Góður sólpallur afgirtur með skjólveggjum sem snýr í suðurs.
Einstök fjölskyldueign á mjög góðum stað í Grafarvogi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttir, sund, verslun og samgöngur í göngufæri.