3 íbúðir í miðbæ Akureyrar - Hér er frábær eign á besta stað á Akureyri. Skipti möguleg á góðum rekstri allt að 300.000.000.- koma til greina.
Domusnova fasteignasala hefur til sölu tvær íbúðir á besta stað í miðbæ Akureyrar. Um er að ræða eign 02-01 sem er 96,1 fm. skrifstofuhúsnæði í einstaklega glæsilegu húsi að Hafnarstræti 99-101, við göngugötuna á Akureyri sem hefur verið innréttað á smekklegan hátt í tvær íbúðir, hvor með einu svefnherbergi á 2. hæð. Á jarðhæð hússins eru verslanir en á efri hæðum íbúðir, skrifstofur og ýmisskonar rekstur. Sameignlegur inngangur, sameiginlega stórar þaksvalir og sameiginlegt þvottahús með tveimur öðrum íbúðum. Staðsetning eignanna er vinsæl og eftirsótt þar sem stutt er í allt og flest er í göngufæri.
Lýsing eigna:Inngangur inn í íbúðir er sameiginleg, gengið er inn götumegin upp á 2. hæð og er hægt að ganga beint af hæðinni út á stórar sameigninlega þakverönd.
Um er að ræða 96,1 fm sem er skipt upp í gang og tvær íbúðir. Sameiginlegt salerni við enda gangs og sameiginlegt þvottahús/geymsla með annarri íbúð.
Íbúð 1 - Alrými sem skiptist í stofu og eldhús, svefnherbergi og baðherbergi.Forstofa: Komið er inn í opið rými. Harðparket á gólfi.
Stofa: Björt stofa sem snýr að göngugötu. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Snyrtilega dökka innréttingu og ljósri borðplata með marmaraáferð. Flísar á milli efri og neðri skápa. Bakaraofn og helluborð (f. tvær hellur). Ísskápur.
Svefnherbergi: Tvöföld kommóða og sjónvarp á vegg. Veggþiljur á einum vegg. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Er innan herbergis. Hvít innrétting með handlaug. Spegill fyrir ofan innréttingu. Vegghengt salerni. Walk in sturta. Þvottavél. Flísar á gólfi og kringum sturtu.
Íbúð 2 - Alrými sem skiptist í stofu og eldhús, svefnherbergi og baðherbergi.Forstofa: Komið er inn í opið rými. Parket á gólfi.
Stofa: Björt stofa sem snýr að göngugötu. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Snyrtilega ljós innréttingu og dökkri borðplötu. Bakaraofn og helluborð (f. tvær hellur). Ísskápur.
Svefnherbergi: Stórt herbergi með hjónarúmi og koju. Dúkur á gólfi
Baðherbergi: Baðherbergi er með sturtuklefa, hvítri innréttingu og vegghengdu salerni. Flísar á gólfi
Íbúð 3Forstofa: Komið er inn í opið rými. Harðparket á gólfi.
Stofa: Björt stofa sem snýr að göngugötu. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Snyrtileg dökk innrétting með hvítum efri skápum. Eldavél. Örbylgjuofn. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi: Fataskápur. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting með skúffum. Upphengt salerni. Walk-in sturta. Handklæðaofn. Dökkar flísar á gólfi.
Allt innbú fylgir með í kaupum.
Tvö fastanúmer. 223-3638 og 231-9446
Annað:
* Fasteignagjöld 2025 (Vatns-og fráveitugjöld eru innheimt með fasteignagjöldum)
Heildarálagning kr. 576.362 // 72.045 pr. mán.
* Húsfélag: Starfandi húsfélag er í húsinu og er greitt um kr. 24.000 á mánuði í hússjóð. Húsfélagið hefur ákveðið að semja við Eflu um úttekt á húsinu og forgangsraða viðgerðum í A B og C flokk, eftir því hversu nauðsynlegar viðgerðir teljast, þannig að hugmyndin er að byrja á því að laga það sem telst bráðnauðsynlegt, ekki annað. Það er nýbúið að skipta um 30 glugga á efri hæðum þannig að það er búið að vera að vinna eitthvað í viðhaldi undanfarið og húsfélagið á framkvæmdasjóð sem ætti að dekka úttektina.
* Hlufallstölur í lóð og heildarhúsi er 2,443%
* Viðauki var gerður við eignaskiptayfirlýsingu árið 2009 þegar eign 0201 var skipt upp í tvö fastanúmer
Nánari upplýsingar veita:Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Sjöfn Hilmarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / sjofn@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.