Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Vættagil 6 - Vel skipulögð 5 herbergja parhúsaíbúð á tveimur hæðum og með innbyggðum bílskúr við vinsæla botnlangagötu í Giljahverfi - stærð 161,9 m²
Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Neðri hæð, 80,0 m²: Forstofa, hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, bílskúr og geymsla
Efri hæð, 81,9 m²: Eldhús, stofa, tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa er með gráum flísum á gólfi og tvöföldum skáp. Hiti er í gólfi.
Hol er með harðparketi á gólf. Af holinu er gengið inn í öll helstu rýmin á hæðinni. Parketlagður stigi liggur upp á efri hæðina, ágætt geymslupláss er undir stigapalli.
Eldhús, spónlögð innrétting með kirsuberjaviði og með góðu skápa- og bekkjarplássi. Flísar eru á gólfi og á milli skápa. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél. Borðkrókur með skemmtilegum útsýnisglugga.
Stofan er björt, með parketi, gólfi gluggum til tveggja átta og innfelldri lýsingu í lofti. Gengið er út úr stofunni til vesturs á rúmgóða timbur verönd.
Baðherbergin eru tvö, eitt á hvorri hæð. Á neðri hæðinni eru flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting og speglaskápur, wc og sturta. Á efri hæðinni eru dökkar flísar á gólfum og ljósar á veggjum, spónlögð innrétting og skápur með kirsuberjaviði, upphengt wc, handklæðaofn, baðkar og opnanlegur gluggi. Hiti er í gólfi.
Svefnherbergin eru fjögur, tvö á hvorri hæð. Tvö eru með harðparketi á gólfum og tvö með parketi. Fataskápar eru í þremur. Stærð herbergja er skv. teikningum 8,7 , 8,7 , 9,9 og 12,6 m².
Þvottahús er með gráum flísum á gólfi og hvítri innréttingu með skolvaska og stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Opnanlegur gluggi.
Bílskúr og geymsla sem er inn af honum eru skráð 29,2 m² að stærð. Þar er lakkað gólf, rafdrifin innkeyrsluhurð, hillur og vinnuborð og tvöfaldur skápur. Fyrir framan er malbikað bílaplan.
Annað
* Geymsluloft er yfir hluta og er fellistigi upp á það úr barnaherberginu á efri hæðinni.
* Búið er að leggja fyrir og setja upp hleðslustöð.
* Húsið var málað að utan árið 2022.
* Rúmgóð timbur verönd er á baklóðinni.
* Loftaklæðning á efri hæðinni er laus og þarfnast lagfæringar.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.