Til leigu 410 m² lager- og iðnaðarhúsnæði við Miðhraun 8 í Garðabæ. Laust strax.
900 m² afgirt útisvæði fylgir með eigninni.
Nánari lýsing: Stór innkeyrsluhurð (ca. 4 m. háar) á austurhlið ásamt gönguhurðum eru inn í eignina sem skiptist í vinnusal með góðri lofthæð ásamt nokkrum rýmum og milliloftum sunnan og norðanmegin við vinnusal. Skrifstofur eru norðanmegin á millilofti með útsýni yfir hraunkantinn til norðurs og stiga milli hæða. Milliloft að sunnanverðu er opið geymslurými með stiga úr sal.
Lóðin er öll malbikuð og er hún lokuð að hluta með grindverki með hliði að framanverðu. Húsnæðinu fylgir stórt útisvæði um 900 m² með sér afgirtri lóð.
Hafðu samband við Axel Ólafsson, löggiltan fasteignasala í síma 661-2507, axel@jofur.is eða Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala og leigumiðlara í síma 824-6703, olafur@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.