Fasteignaleitin
Skráð 30. mars 2025

Hrafnaborg 1 íbúð 203

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurnes/Vogar-190
107.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
63.900.000 kr.
Fermetraverð
596.639 kr./m2
Fasteignamat
42.250.000 kr.
Mynd af Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2535230
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fallegar og vandaðar íbúðir í nýju hverfi – Hrafnaborg 1, Grænabyggð, Vogum
Trausti fasteignasala kynnir til sölu glæsilegar og vel hannaðar íbúðir í nýbyggingu við Hrafnaborg 1, staðsettar í hinu nýja og fjölskylduvæna hverfi Grænabyggð í Vogum.

Hrafnaborg 1 er tveggja hæða fjölbýlishús með átta íbúðum, byggt úr staðsteyptu efni og klætt að utan. Húsið er með opnu stigahúsi og allar íbúðir hafa sérinngang. Á hvorri hæð eru fjórar íbúðir – þær á efri hæð eru með svalir með ál-/glerhandriði, en þær á neðri hæð hafa sérafnotareit. Lóðin verður fullfrágengin, með malbikuðum og hellulögðum svæðum og gróðri að öðru leyti.

Vel skipulagðar, bjartar og rúmgóðar íbúðir
Íbúðirnar eru fjögurra herbergja, með stórum gluggum sem hleypa inn mikilli birtu. Þær státa af aukinni lofthæð, fallegum innréttingum og innfelldri lýsingu að hluta. Allar íbúðir eru afhentar fullbúnar með gólfefnum og málaðar í hinum vinsæla lit 1/4 HÖR frá Slippfélaginu, sem gefur hlýja tóna. Íbúðir á efri hæð njóta enn meiri lofthæðar, allt að 3 metrum!


Nánari upplýsingar veita:
Mirabela Blaga, lgf. – 699-0911 / mirabela@trausti.is
Aðalsteinn Jón Bergdal, lgf. – 767-0777 / alli@trausti.is
Hallgrímur Hólmsteinsson, lgf. – 896-6020 / hallgrimur@trausti.is

Íbúð 203 – Glæsileg 107,1 m² íbúð með rúmgóðum svölum, 3 metra lofthæð og innfelldri lýsingu.
Þessi bjarta og vel skipulagða íbúð státar af aukinni lofthæð, innfelldri lýsingu og rúmgóðu alrými sem sameinar stofu, borðstofu og eldhús.

Skipulag íbúðarinnar:
✅ Stórt alrými (stofa, borðstofa og eldhús)
✅ Eldhús með stórri eyju
✅ Þrjú svefnherbergi
✅ Baðherbergi
✅ Forstofa
✅ Þvottahús og geymsla innan íbúðar

Vandaður frágangur og innréttingar:
- Gólfefni: Ljósgrátt harðparket í alrými og herbergjum, flísar í votrýmum.
- Innréttingar: Sérsmíðaðar eldhús- og baðinnréttingar ásamt fataskápum.
- Eldhús: Glæsileg eldhúseyja sem rúmar 3–4 stóla, spanhelluborð í eyju og gott skápapláss. Vönduð eldhústæki frá AEG, þar á meðal innbyggður kæli-/frystiskápur, uppþvottavél og blástursofn með burstaðri stáláferð. Hangandi eyjuháfur frá Airforce. Öll tæki eru frá Bræðrunum Ormsson með tveggja ára ábyrgð.
- Baðherbergi: Flísalagt með 120x60 cm marmara- og svörtum flísum. Sérsmíðaðar innréttingar í viðarlit, yfirfelldur vaskur, speglaskápur, walk-in sturta með glerskilrúmi og veglegur krómaður handklæðaofn.
- Hurðir: Fallegar, gráar, yfirfelldar þröskuldslausar fölningshurðir í öllum rýmum nema votrýmum.
- Þvottahús og geymsla: Sér rými með flísalögðu gólfi og vegghengdum skolvaski.

Grænabyggð – Framtíðarhverfi í einstöku umhverfi
Grænabyggð er vel staðsett nýtt hverfi við sjávarsíðuna, hannað með fjölskylduvænt umhverfi í huga. Í nágrenni eru leik- og grunnskólar, og fyrirhuguð er bygging nýrra skólamannvirkja samhliða stækkun hverfisins.
Gert er ráð fyrir að Grænabyggð verði hverfi fyrir um 1.500 íbúa, þar sem ríflega 800 íbúðir verða byggðar á næstu tíu árum. Svæðið þróast í hægu og öruggu skrefum, með blandaða byggð þar sem áhersla er lögð á lítil sérbýli. Uppbygging hverfisins er í samræmi við samkomulag Grænubyggðar ehf. og Sveitarfélagsins Voga, sem tryggir skipulagða stækkun með nauðsynlegri innviðauppbyggingu.

Nánari upplýsingar veita:
Mirabela Blaga, lgf. – 699-0911 / mirabela@trausti.is
Aðalsteinn Jón Bergdal, lgf. – 767-0777 / alli@trausti.is
Hallgrímur Hólmsteinsson, lgf. – 896-6020 / hallgrimur@trausti.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álftamýri 6
Opið hús:26. apríl kl 14:30-15:00
Diddi_vefur (1).jpg
Skoða eignina Álftamýri 6
Álftamýri 6
108 Reykjavík
139.9 m2
Fjölbýlishús
413
600 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Búðavegur 35
Skoða eignina Búðavegur 35
Búðavegur 35
750 Fáskrúðsfjörður
398.7 m2
Fjölbýlishús
4610
Fasteignamat 24.300.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Kristnibraut 57
3D Sýn
Bílskúr
Opið hús:30. apríl kl 16:30-17:30
Skoða eignina Kristnibraut 57
Kristnibraut 57
113 Reykjavík
112.8 m2
Fjölbýlishús
312
682 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Blönduhlíð 23
Opið hús:26. apríl kl 13:00-13:30
IMG_1029.JPG
Skoða eignina Blönduhlíð 23
Blönduhlíð 23
105 Reykjavík
79.8 m2
Fjölbýlishús
211
783 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin