Valhöll kynnir mjög fallegt parhús á frábærum stað innst í botnalanga í Sæviðarsundi í Reykjavík. Húsið er á tveimur hæðum með fjórum svefnherbergjum, stórum bílskúr og fallegum garði með verönd. Húsið er vel skipulagt með rúmgóðum herbergjum og fallegri hönnun.
Eignin, sem er byggt árið 1999, er skráð 189,5 fm á stærð og skiptist í 153,2 fm íbúðarrými og 36,3 fm bílskúr í bílskúrslengju við hlið hússins.
Skipulag hússins er mjög gott en á neðri hæð er forstofa, gestasalerni, eldhús og stofa / borðstofa. Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Þetta er gott fjölskylduhús sem vert er að skoða.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa: með fataskápum og flísum á gólfi.
Gestasalerni: innaf forstofu með flísum á gólfi.
Eldhús: með hvítri innréttingu, stórri eyju, parketi á gólfi og útgengi á verönd.
Stofa / borðstofa: samliggjandi með parketi á gólfi og útgengi á verönd.
Efri hæð:
Hjónaherbergi: 13,7 fm á stærð með fataskápum, parketi á gólfi og útgengi á 8,2 fm svalir.
Svefnherbergi: 125, fm á stærð með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: 12,5 fm á stærð með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: 8,9 fm á stærð með parketi á gólfi.
Baðherbergi: með sturtu, baðkari, handklæðaofni og flísum á gólfi.
Þvottaherbergi: með skolvaski og flísum á gólfi.
Bílskúr:
36,3 fm bílskúr í bílskúrslengju við hlið hússins.
Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.