Andri Freyr Halldórsson lgfs & Albert Bjarni lgfs. til sölu: Austurberg 6, 111 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 04-01 fnr. 205-1491, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Hús mikið endurnýjað að utan, klætt að hluta og búið að byggja yfir svalirnar.
Skráð stærð eignar skv. FMR er 93.9 fm. Bílskúr 18 fm. Íbúðin er merkt 04-01.
Nánari upplýsingar veita:
Andri Freyr Halldórsson lgfs // 762-6162 // ANDRI@FASTLIND.IS
Albert Bjarni Úlfarsson lgfs // 8210626 // ALBERT@FASTLIND.IS
*18 fm Bílskúr
*Mjög góð fyrstu kaup
*4 svefnherbergi
*Yfirbyggðar svalir
Eignin skiptist í:
Forstofu, gang, stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi og baðherbergi með innréttingu fyrir þvottavél & þurkarra.
Sér geymsla og sameiginlegt þvottahús eru í kjallara. Sameiginlegur garður er á bak við hús.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri: Forstofan er flísalögð og gangurinn er með parketi, góður skápur í holi.
Eldhús: fallegt flísalagt eldhús með nýlegri hvítri innréttingu sem nær upp í loft, bakaraofni, span helluborði ásamt eyju.
-Eldhús nýlega endurnýjað
Stofa & borðstofa: rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi, stórum glugga til suðurs og útgengni á sér svalir með svalalokun.
Baðherbergi: nýlega endurnýjað baðherbergi að hluta, flísalagt hólf í gólf, baðkar með sturtu, vegghengdu WC, handklæðaofni, þvotta aðstaða í innréttingu með neðri skápum og tengi fyrir þvottavél & þurrkara.
Hjónaherbergi: rúmgott hjónaherbergi inn af anddyri með parketi á gólfi, og góðum fataskáp.
Svefnherbergi 2: parket á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi 3: parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 4: parket á gólfi.
Geymsla: sér geymsla í kjallara.
Sameign: snyrtileg með sameiginlegri hjólageymslu.
Bílskúr: snyrtilegur bílskúr fylgir eigninni.
Austuberg 6 er á góðum og rólegum stað í grónu og fjölskylduvænu hverfi í 111 Reykjavík. Stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem leik- og grunnskóla, verslanir, íþróttamannvirki og almenningssamgöngur. Í nágrenni eru göngu- og útivistarsvæði sem bjóða upp á notalegt umhverfi til daglegra ferða og afþreyingar. Góðar samgöngutengingar tryggja greiðan aðgang að stofnbrautum og öðrum hverfum borgarinnar.
Nánari upplýsingar veita:
Andri Freyr Halldórsson lgfs // 762-6162 // ANDRI@FASTLIND.IS
Albert Bjarni Úlfarsson lgfs // 8210626 // ALBERT@FASTLIND.IS
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar.
Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma & SÝN.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.