Fasteignaleitin
Skráð 28. apríl 2026

Urriðaholtsstræti 32

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
136.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
114.900.000 kr.
Fermetraverð
839.299 kr./m2
Fasteignamat
109.700.000 kr.
Brunabótamat
97.810.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2502206
Landnúmer
224777
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýlegar
Raflagnir
Nýlegt
Frárennslislagnir
Nýlegar
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Nýtt á skrá! Urriðaholtsstræti 32 Garðabæ - Falleg 4ra herb. íbúð á þriðju hæð með tveimur baðherbergjum og rúmgóðum svölum til suðurs.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar glæsilega 136,9 fermetra 4ra herbergja íbúð á þriðju hæð með tveimur baðherbergjum og svölum til suðurs við Urriðaholtsstræti 32 í Garðabæ. Fallegt lyftuhús byggt árið 2019. Íbúðin er björt og með gluggum til þriggja átta. Virkilega vel skipulögð íbúð með stóru alrými. Rúmgóð svefnherbergi og hjónaherbergi með baðherbergi inn af. Vandað eldhús með stórri eldhúseyju og steini á borðum.  Myndavéladyrasími er í húsinu. Innfelld lýsing að hluta í loftum.

Um er að ræða afar fallega íbúð á eftirsóttum stað við Urriðaholtsstræti í Garðabæ. Útsýni frá íbúðinni er virkilega fallegt til norðausturs úr alrými. Lóðin er vel hirt með tyrfðum flötum og stéttum með snjóbræðslu. 

Staðsetning er virkilega góð þar sem stutt er í verslanir, veitingastaði, kaffihús, leikskóla (Urriðaból I og Urriðaból II), grunnskóla (Urriðaholtsskóla) og glæsileg útivistarsvæði. Oddur golfvöllur, Urriðavatn og Heiðmörk í göngufjarlægð. Staðsetning í lokuðum rólegum botnlanga.

Nánari lýsing: 

Forstofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og góðum skápum.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu með stórri eldhúseyju með steini á borðum. Stál AEG bakaraofn og spansuðu helluborð. Innbyggður kæliskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél. Fallegur eyjuháfur, undirfelldur vaskur og lýsing undir efri skápum. Eldhús er opið við stofu og með útgengi á svalir.
Svalir: Snúa til suðurs inn í bakgarð hússins.
Stofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi og gluggum til norðurs, austurs og suðurs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi á svalir.
Baðherbergi I: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili, falleg innrétting við vask með steini á borðum. Upphengt innbyggt salerni og gluggi til norðurs.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, skápum á heilan vegg og glugga til suðurs. Baðherbergi II er inn af hjónaherbergi.
Baðherbergi II: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Falleg innrétting við vask með steini á borðum. Upphengt salerni og opnanlegur gluggi til suðurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs með útsýni að Esjunni og hlíðum Heiðmerkur. 
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs með útsýni að Esjunni og hlíðum Heiðmerkur. 
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi og innréttingu/hækkun undir þvottavél/þurrkara. Vinnuborð og vaskur.

Sérgeymsla: Í kjallara sem er 7,1 fermetrar. Málað gólf og hillur.
Bílastæði: Er sérmerkt í lokuðum bílakjallara.

Í sameign er aðgengi að: Sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu sem er snyrtileg með máluðu gólfi. Stigagangur og sameign er mjög snyrtileg.

Um er að ræða frábæra staðsetningu í Urriðaholti í Garðabæ þar sem stutt er í fallegar göngu- og hjólaleiðir. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í 849-0672 / heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/05/202096.700.000 kr.66.000.000 kr.136.9 m2482.103 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2019
Fasteignanúmer
2502206
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.710.000 kr.

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hádegisskarð 3 -5, 7-9
Hádegisskarð 3 -5, 7-9
221 Hafnarfjörður
792 m2
Jörð/Lóð
4812
164 þ.kr./m2
129.500.000 kr.
Skoða eignina Skjólbraut 2
Bílskúr
Skoða eignina Skjólbraut 2
Skjólbraut 2
200 Kópavogur
119.9 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
788 þ.kr./m2
94.500.000 kr.
Skoða eignina Þorraholt 17 Þakíbúð
Bílastæði
Opið hús:12. maí kl 17:30-18:00
Þorraholt 17 Þakíbúð
210 Garðabær
197.1 m2
Fjölbýlishús
513
1116 þ.kr./m2
220.000.000 kr.
Skoða eignina Bæjarbrekka 10
Bílskúr
Skoða eignina Bæjarbrekka 10
Bæjarbrekka 10
225 Garðabær
155 m2
Raðhús
412
786 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin