Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Kambastígur 2a á Sauðárkróki
Þriggja herbergja íbúð á jarðhæð auk aukaíbúðar í kjallara að Kambastíg 2a - heildarstærð 137,7 m²
Íbúðirnar eru báðar í útleigu - góðar leigutekjur.
Íbúð á hæð er skráð 66,9 m² að stærð og skiptist í forstofu/gang, stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi.
Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi. Á gangi íbúðar eru góðir fataskápar.
Stofan er með parketi á gólfi og góðum gluggum til tveggja átta.
Baðherbergi er parketlagt, með ljósri innréttingu, speglaskáp, sturtuklefa, vegghengdu wc og opnanlegum glugga.
Eldhúsið er með nýlegri dökkri innréttingu, dökkri bekkplötu, háfi og stæði fyrir þvottavél og uppþvottavél.
Svefnherbergin eru tvö, bæði parketlögð og annað þeirra með fataskáp.
Kjallaraíbúð var útbúin úr skráðum geymslum og tómstundarými, skráð 70,8 m² að stærð. Hún skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi.
Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð.
Stofan er rúmgóð, með flísum á gólfi og opnanlegum glugga.
Eldhús er með ljósri innréttingu með dökkri bekkplötu.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, ljósri innréttingu, vegghengdu wc, handklæðaofni, sturtu og stæði fyrir þvottavél. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu.
Svefnherbergin tvö eru bæði flísalögð, með góðum fataskápum.
Annað:
- Húsið var málað og múrviðgert að utan 2025
- Eignin var töluvert gerð upp á árunum 2020 - 2022
- Lóðin er skipt skv eignaskiptasamningi. Eigninni tilheyra bílastæði að austan, verönd sunnan húss og stéttar við innganga að austan, ásamt austurhluta lóðarinnar.
- Góðar leigutekjur.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.