Fasteignaleitin
Opið hús:14. júní kl 13:00-13:30
Skráð 13. apríl 2026

Eskiás 7 íb202

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
102.5 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
97.900.000 kr.
Fermetraverð
955.122 kr./m2
Fasteignamat
20.150.000 kr.
Mynd af Gunnar Patrik Sigurðsson
Gunnar Patrik Sigurðsson
Fasteignasali
Sérinng.
Fasteignanúmer
2512844_241
Landnúmer
231032
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan TORG kynnir í sölu:  NÝR ÁFANGI KOMINN Í SÖLU Eskiás 7. Alls 17 íbúðir í þessu nýju götu á besta stað í Garðabæ.  Íbúð 202 er 5. herbergja íbúð skráð 102,5fm með sérinngangi og 5,7 fm svölum. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu, 4 svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign. Íbúðirnar afhendast fullfrágengnar án gólfefna, en votrými er flísalagt.  Nánari upplýsingar veitir Gunnar Patrik, fasteignasali í GSM: 822-9415, eða gunnar@fstorg.is

Nánari upplýsingar: Um er að ræða nýbyggingu að Eskiás 7 í Garðabæ. Skilalýsing seljanda gildir en í henni kemur meðal annars fram: Íbúðirnar afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum, án gólfefna, en votrými eru flísalögð. Svalir eru út frá stofu íbúða á efri hæðum.  Sérafnotasvæði er út af stofu með íbúðum á jarðhæð.
Bílastæði eru á lóð og gert er ráð fyrir nokkrum fjölda hleðslustæða. Allar íbúðir með aðgengi að inngarðinum sem býr til skjólsælan reit fyrir íbúa Eskiás. Íbúðirnar eru hannaðar til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra innan íbúða. Viðhaldslítil klæðning á húsum og lágmarkssameign tryggir hagkvæman rekstur íbúða. Eskiásinn er í miðju grónu hverfi með alla þjónustu í næsta nágreinni. Skólar, verslun og þjónusta eru allt í kring auk þess sem Garðabær hyggst byggja nýjan leikskóla á Lyngási fyrir neðan Eskiás.

Sjá nánari upplýsingar á Heimasíðu verkefnis hér: ESKIAS.IS

Innréttingar og hurðir: Innréttingar í eldhúsi verða af vandaðri gerð frá NOBILIA og fataskápar frá Trésmiðju GKS. Innihurðir verða hvítlakkaðar yfirfelldar hurðir (Jeld-Wen Moralt).
Baðherbergi/þvottahús: Baðherbergi/þvottahús eru forframleidd og hífð inn í hús samhliða uppsteypu húsanna. Söluaðili baðherbergjanna er Wilbergs/Bitter ehf. (Parki) og eru þau hönnuð af Boxen samkvæmt norskum stöðlum. Mikið er lagt upp úr vönduðum frágang og er allt efni og búnaður af þekktri og viðurkenndri gerð.
Heimilistæki: Eldhús skilast með blástursofni, spanhelluborði og innbyggðum ísskáp frá Whirlpool sem þjónustað er af Heimilistækjum. Vifta með kolasíu er í efri skápum yfir helluborði en þar sem að helluborð er staðsett á eyju eða tanga er einungis gert ráð fyrir möguleika á að bæta við viftu.
Hreinlætistæki: Öll hreinlætistæki eru að vandaðri gerð frá Grohe. Á baðherbergjum eru tækin krómlituð en í eldhúsi eru vaskur og blöndunartæki svört 
Gólfefni: Íbúðum verður skilað með flotuðum gólfum án gólfefna nema á baðherbergjum/þvottahúsi þar sem að veggir og gólf eru flísalögð upp í loft.  
Slökkvitæki og reykskynjari fylgja hverri íbúð. Dyrabjalla og póstkassi er við hvern sérinngang.
Frágangur utanhúss: Útveggir verða einangraðir að utan og klæddir með svartri álbáru, kopargrænum sléttum plötum (Alpolic FR 4mm) og jarðlituðum sementsplötum (Equitone). Allt klæðningarefni og undirkerfi klæðninga kemur frá Málmtækni. Svalahandrið eru úr stáli klætt lóðréttum bambus renningum. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum.
Frágangur lóðar: Lóð verður skilað fullfrágenginni. Megin göngustígar verða ýmist hellulagðir eða steyptir og grassvæði þökulögð. Leiksvæði. 
Rafbílahleðsla: Gert verður sérstaklega ráð fyrir fjölda rafhleðslustæða og möguleikum til að auka fjölda þeirra þegar þörf krefur.
Afhending íbúðanna: Gert er ráð fyrir að eignirnar verði afhentar í apríl/maí 2026
Kaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt. 
Ath. innimyndir eru tölvuteiknaðar og eru til glöggvunar en sýna ekki endanlegan frágang eignarinnar, nánar um skil sjá skilalýsingu seljanda. 
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (2)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Háteigur 14
Skoða eignina Háteigur 14
Háteigur 14
230 Reykjanesbær
64 m2
Fjölbýlishús
211
670 þ.kr./m2
42.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarhvammur 6 (302)
Opið hús:11. júní kl 17:30-18:00
Heiðarhvammur 6 (302)
230 Reykjanesbær
62.4 m2
Fjölbýlishús
211
639 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 11
Til leigu
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 11
Naustavör 11
200 Kópavogur
135.9 m2
Fjölbýlishús
413
Fasteignamat 67.700.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Jöfursbás 3c Íb. 509
Bílastæði
Jöfursbás 3c Íb. 509
112 Reykjavík
107.7 m2
Fjölbýlishús
312
1002 þ.kr./m2
107.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin