Fasteignaleitin
Skráð 1. sept. 2026

Sólbakki 27

Atvinnuhúsn.Vesturland/Borgarnes-310
142.2 m2
Verð
45.900.000 kr.
Fermetraverð
322.785 kr./m2
Fasteignamat
27.900.000 kr.
Brunabótamat
43.150.000 kr.
Byggt 2007
Jarðhæð
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2300086
Landnúmer
187483
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Stál
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
05
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala Borganesi kynna:

Iðnaðarbil við Sólbakka 27 í Borgbyggð, eign með fjölbreyta notkunarmöguleika 

Hægt er að sína eignina samdægurs.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is


Seljendur eru með opin huga varðandi möguleg eignaskipti, hafið samband við fasteignasala til að ræða slíkt.

Heildar húsið er 664, fm. og skiptist í 7 eignarhluta.
Um er að ræða iðnaðarbil (0105) sem er með skráða fermetra á tveimur hæðum samtals 117,2 fm. 
Gólfflötur á jarðhæð er 95,6 fm, milliloftið er 21,6 og svo er óskráð rými 25 fm.  
Milliloftið (21,6 fm) er innréttað með eldhúskrók, klósetti og sturtuaðstöðu. 
Húsið er byggt 2007 og stendur á 3780 m2 lóð.
Tengt er fyrir þriggja fasa rafmagn og er eignin laus við kaupsamning.
Lóð er fullfrágengin með malbikuðu plani.
Húsið er skráð 117,2 fm, en einnig er búið að byggja auka milliloft sem er 25,6 m2 ekki skráð í fm tölu og skráð til upplýsingar á söluyfirlit sem óskráð rými.
Heildar nýtanlegir fermetrar eru því samtals 142,8 fm.
Sameiginlegt inntaksrými sem er gengið í að aftan verðu  (hjá bili 104)

Bil 105:
95,6 fm salur, 21,6 fm milliloft og óskráð auka milliloft 25 fm.
Lofthæð 7 metrar undir hæsta punkt.
Stór innkeyrsluhurð og tvær gönguhurðir, önnur að framan og hin að aftan. 

Nánar um eignina:
Neðri hæðin er iðnaðarbil með lítilli innréttingu með vaski. Heitt og kalt vatn. Útgengt er í báðum endum bils. Hátt til lofts.
Efri hæðin er skrifstofuaðstaða/kaffistofa með eldhúskrók og er parket á gólfi.
Baðherbergi er með glugga, sturta, vaskur og salerni og dúkur á gólfi.
Stórt og gott geymslurými (25 fm) fyrir framan kaffistofu sem ekki eru inn í skráðri fm tölu.

Eign sem býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika og hentar ýmiss konar atvinnustarfsemi.
Borgarnes er vel í sveit sett hvað varðar samgöngur enda liggur Þjóðvegur 1 í gegnum bæinn.

Athugasemdir sem komu fram við skoðun:
Við byggingu þessara iðnaðarbila var ekki rétt gengið frá eldvörnum. Seljandi lét laga það núna í janúar að hluta, þar sem settar voru gipsplötur upp við og aðeins inn á loftið. Þessar lagfæringar er búið að gera í flestum bilunum í þessari lengju og snýst um brunahólfun. Það á eftir að setja upp og tengja brunaslöngu, en það er búið að kaupa slönguna sjálfa. Þá á eftir að setja upp slökkvitæki. 

Lóðin er í eigu Borgarbyggðar og er leigð til óákveðins tíma. 

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala Borganesi / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/04/20149.310.000 kr.12.000.000 kr.117.2 m2102.389 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
25 m2
Fasteignanúmer
2300086
Fasteignalausnir ehf (Lifum Heima)

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Háheiði 13D
Skoða eignina Háheiði 13D
Háheiði 13D
800 Selfoss
138.2 m2
Atvinnuhúsn.
1
318 þ.kr./m2
43.900.000 kr.
Skoða eignina Straumhella 6
Skoða eignina Straumhella 6
Straumhella 6
221 Hafnarfjörður
133.4 m2
Atvinnuhúsn.
375 þ.kr./m2
50.000.000 kr.
Skoða eignina Tunguhella 9H
Skoða eignina Tunguhella 9H
Tunguhella 9H
221 Hafnarfjörður
152.8 m2
Atvinnuhúsn.
359 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Tunguhella 9G
Skoða eignina Tunguhella 9G
Tunguhella 9G
221 Hafnarfjörður
152.8 m2
Atvinnuhúsn.
359 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin